Stjarnan kærði framkvæmd leiksins á þeim forsendum að dómararnir hefðu nýttu síma til að skera úr um það hvort HK hefði átt að fá vítakast undir lok leiksins. Vítið var dæmt, Leó Snær Pétursson tók það, skoraði og tryggði HK-ingum jafntefli, 27-27. HK skoraði síðustu átta mörk leiksins.
Stjörnumenn töldu að dómurum leiksins hefði ekki verið heimilt að nýta sér myndbandsupptöku úr síma. Þeir kröfðust þess að HK yrði dæmt tap eða að leikurinn yrði leikinn aftur. Báðum kröfum Stjörnunnar var vísað frá og úrslitin í leiknum standa.
Í skriflegum framburði sínum segja dómarar leiksins að þeir hafi ekki tekið ákvörðun út frá myndbandinu eða útsendingunni frá leiknum.
Í dómnum kemur einnig fram að ekki hafi verið hægt að notast við upptöku af leiknum í Handboltapassanum þar sem leikklukka á vellinum og leikklukka í útsendingu hafi ekki passað saman. Því hafi ekki verið hægt að vita hvort leiktíminn hafi verið runninn út eða ekki þegar vítakastið var dæmt.
„Með vísan til afdráttarlausrar lýsingar þriggja dómara sem komu að leik Stjörnunnar og HK, þ.e. tveggja leikdómara og eftirlitsdómara verður að byggja málið á þeim forsendum að engar upplýsingar hafi komið fram á myndskeiði í síma, á meðan á leik stóð, sem hafi haft áhrif á ákvörðun dómaranna. Þannig hafi leikdómarar stöðvað tímann og ráðfært sig við hvorn annan og eftirlitsdómara áður en ákvörðun var tekin sem byggði á þeirri eigin mati á aðstæðum. Er á þeim forsendum hafnað þeirri efnislegu kröfu kæranda að dómarar hafi farið út fyrir leikreglur við töku ákvörðunar. Felur það í sér að hafnað er bæði aðalkröfu og varakröfu kæranda, Stjörnunnar,“ segir meðal annars í niðurstöðu dómsins.