Fyrir ári kynntumst við unga rithöfundinum Emblu Bachmann þegar hún gaf út sína fyrstu barnabók Stelpur stranglega bannaðar og nældi sér í tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Og það sautján ára!
Í ár gefur hún út bókina Kærókeppnin og nældi sér auðvitað í aðra tilnefningu fyrir hana, undrabarn eða hvað?

Kærasta eða kærasti?
Kærókeppnin fjallar um bestu vinina Davíð og Natalíu sem hafa keppst við hvort annað síðan þau voru í bleyjum. Þau eru bæði hörkuduglegir íþróttamenn, Davíð er í handbolta og Natalía í fótbolta, og því ekki furðulegt að þau hamist við að sigra hvort annað í allskonar fáránlegum og jafnvel tilgangslausum keppnum.
En einn örlagaríkan dag í byrjun sumars móðgast Natalía þegar Davíð gefur í skyn að hann muni augljóslega byrja fyrstur í sambandi af þeim tveimur. Natalía heldur sko ekki og þá hefst hin æsispennandi og flókna KÆRÓKEPPNI. Bæði hamast þau við að finna sér álitlegt ástarviðfang en mistekst sífellt því þau virðast bæði jafn óheppin í ástum.
Skemmtilegt fannst mér að bæði Davíð og Natalía virtust ekki kippa sér upp við hvort þau enduðu með kærustu eða kærasta. Þá er það sérstaklega Davíð sem gefur þó nokkrum drengjum séns með misjöfnum árangri.
Mér fannst þetta vel gert þar sem aldrei er beint fjallað um kynhneigð þeirra, enda þarf það ekki að skipta máli, heldur er þetta bara sjálfsagður partur af tilveru þeirra.