Liverpool og Newcastle fylgdu Arsenal í undanúrslit enska deildabikarsins í kvöld. Liverpool sló út Southampton en Newcastle vann Brentford.
Liverpool vann 2-1 útisigur á Southampton eftir erfiðan seinni hálfleik en topplið ensku úrvalseildarinnar telfdi fram hálfgerðu varaliði í leiknum í kvöld.
Liverpool gerði átta breytingar á byrjunarliðinu sínu og hvíldi marga lykilleikmenn sína. Mohamed Salah og Virgil van Dijk voru meðal þeirra sem voru hvíldir.
Liverpool var í góðum málum í hálfleik eftir að Darwin Nunez og Harvey Elliott komu liðinu tveimur mörkum yfir á fyrstu 32 mínútum leiksins.
Nunez skoraði fyrra markið á 24. mínútu eftir að stungusending Trent Alexander-Arnold hafði viðkomu í varnarmanni.
Elliott var að byrja sinn fyrsta leik á tímabilinu og hann kom Liverpool í 2-0 á 32. mínútu eftir laglega sókn og stoðsendingu frá Cody Gakpo.
Cameron Archer minnkaði muninn fyrir Southampton á 59. mínútu og galopnaði með því leikinn. Stuttu síðar fengu Southampton menn tækifæri til að jafna metin.
Newcastle vann 3-1 heimasigur á Brentford þar sem Ítalinn Sandro Tonali skoraði tvisvar sinnum í fyrri hálfleiknum.
Fyrra mark Tonali kom á 9. mínútu en það síðata á 43. mínútu. Fabian Schär kom Newcastle síðan í 3-0 á 69. mínútu og gulltryggði sigurinn.
Yoane Wissa minnkaði muninn fyrir Brentford í uppbótatíma leiksins en nær komust gestirnir ekki.
Liverpool og Newcastle og Arsenal eru komin áfram en annað kvöld kemur svo í ljós hvort Manchester United eða Tottenham verði fjórða liðið í pottinum.