Fjölgar listaverkum eftir konur á Bessastöðum Lovísa Arnardóttir skrifar 19. desember 2024 17:46 Halla hefur valið verkin í samvinnu við Listasafn Íslands. Mynd/Aldís Pálsdóttir Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur í samvinnu við Listasafn Íslands endurnýjað úrval íslenskrar myndlistar sem prýðir Bessastaði. Við valið á nýjum listaverkum fyrir Bessastaði var, samkvæmt tilkynningu, haft í huga að færa aukna breidd í þá list sem þar er til sýnis. Þannig spanna verkin nú lengra tímabil í íslenskri listasögu en áður auk þess sem verkum eftir myndlistarkonur hefur verið fjölgað til jafns við karla.
Í tilkynningu frá embættinu segir að allt frá lýðveldisstofnun hafi Listasafn Íslands lánað listaverk til Bessastaða. Almenningi býðst næst að heimsækja Bessastaði á Safnanótt sem haldin verður í tilefni Vetrarhátíðar þann 7. febrúar næstkomandi. Nánar má fræðast um myndlistina á þjóðhöfðingjasetrinu hér. Samtals 28 íslensk verk úr safnkosti Listasafns Íslands prýða nú Bessastaði að loknum breytingum auk nokkurra verka sem eru í eigu embættisins. Samhliða endurnýjuninni verður sett upp ný síða á vef Listasafns Íslands sem tileinkuð er listaverkunum á Bessastöðum. Markmiðið er samkvæmt tilkynningu að þjóðhöfðingjasetrið endurspegli þá miklu grósku sem einkennir íslensk myndlistarlíf og jafnframt að greiða aðgengi almennings að upplýsingum um listaverkin sem þar má sjá. Listaverkin Samkvæmt tilkynningu er nú í móttökusal Bessastaða er listaverk eftir Nínu Tryggvadóttur í öndvegi en Flugþrá Jóhannesar Kjarvals, sem þar var áður, fær enn að njóta sín í salnum, að viðbættu verki hans Blóm í landslagi. Þá er verkið Vindstroka eftir Kjarval á sama stað og áður í bókhlöðunni. Önnur ný verk í móttökusalnum eru eftir Kristínu Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Jón Stefánsson, Kristján Davíðsson, Georg Guðna Hauksson og Eggert Pétursson. Öll eiga þau það sameiginlegt að leita innblásturs í íslenskri náttúru þótt hvert og eitt þeirra geri það með sínum sérstaka hætti. Í Suðurstofu Bessastaða eru verk eftir listafólk sem öll hafa unnið með myndheim abstrakt listar og spanna þau tæplega 100 ára tímabil. Hið elsta er eftir Finn Jónsson sem var frumkvöðull í abstraktlist á Íslandi. Meðal verka á fyrstu sýningu hans, árið 1925, var verkið Óður til mánans sem nú má sjá á Bessastöðum. Yngsta verkið í Suðurstofu er Sveigja frá árinu 2023 eftir Kristínu Morthens sem er fædd árið 1992. Þá eru í Suðurstofu verk eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Guðmundu Andrésdóttur og Kristján Davíðsson. Verk í Garðskálanum. Borðstofa Bessastaða er helguð úrvali verka sem innblásin eru af íslenskum atvinnuháttum. Í verkum eftir Kristínu Jónsdóttur, Þorvald Skúlason og Jón Engilberts má sjá fólk við ýmis störf sem tengjast þéttbýlismenningu. Sveitarómantíkin svífur hins vegar yfir vötnum í verkum Louisu Matthíasdóttur og Jóhanns Briem sem einnig prýða borðstofuna. Í Thomsenstofu voru valin verk eftir þrjá frumherja íslenskrar myndlistar, þá Þórarin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson og Jóhannes Kjarval. Þar má einnig sjá verk í eigu forsetaembættisins eftir danska listamanninn Emanuel Larsen sem var málað árið 1847. Á Thomsengangi hangir nú vefnaðarverk sem Volodimír Selenskí Úkraínuforseti færði forseta Íslands að gjöf eftir fund þeirra á Bessastöðum í október 2024. Verkið, sem kallast Sólblóm eftir þjóðarblómi Úkraínu, er handofið veggteppi eftir úkraínskar listakonur frá bænum Reshetylivka í Poltava-héraði sem þekkt er fyrir einstakt handverk. Í sama rými eru tvö blómamálverk eftir þær Júlíönu Sveinsdóttur og Nínu Sæmundsen sem valin voru sérstaklega til að kallast á við veggteppið. Loks ber að nefna höggmyndina Móðir og barn eftir Tove Ólafsson en það verk blasir við gestum Bessastaða þegar gengið er um blómaskálann inn í móttökusal.
Forseti Íslands Myndlist Söfn Halla Tómasdóttir Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira