Innherji

Sam­kaup ætlar að auka hluta­fé sitt um einn milljarð eftir mikið tap á árinu

Hörður Ægisson skrifar
Samkaup rekur yfir 60 verslanir víðsvegar um landið, meðal annars undir merkjum Nettó, en yfirstandandi rekstrarár hefur verið afar krefjandi og útlit fyrir mikið tap. 
Samkaup rekur yfir 60 verslanir víðsvegar um landið, meðal annars undir merkjum Nettó, en yfirstandandi rekstrarár hefur verið afar krefjandi og útlit fyrir mikið tap. 

Hluthafar Samkaupa, sem hefur núna boðað sameiningu við Heimkaup, hafa samþykkt að ráðast í hlutafjáraukningu upp á samtals liðlega einn milljarð króna eftir erfitt rekstrarár en útlit er fyrir heildartap matvörukeðjunnar muni nema mörg hundruð milljónum. Þá hefur fjárfestingafélagið SKEL fengið Guðjón Kjartansson, sem starfaði um árabil meðal annars í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, sem fulltrúa sinn í stjórn Samkaupa.


Tengdar fréttir

Sam­ein­ing við Sam­kaup gæti „hrist­ upp“ í smá­söl­u­mark­aðn­um

Mögulegur samruni Orkunnar og Heimkaupa við Samkaup, sem er sagður vera rökréttur, gæti „hrist nokkuð upp í smásölumarkaðnum“ og ljóst að sameinað félag yrði nægjanlega stórt til að eiga erindi á Aðalmarkað í Kauphöllinni, að mati greinenda. Á meðan risarnir á markaði, Hagar og Festi, eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða sem eru ekki ýkja virkir í stjórnun félaganna eru hluthafar Skel fjárfestingafélags, sem á Orkuna og Heimkaup, líklega „meira öskrandi á hliðarlínunni.“

For­dæma­laus hús­leit þegar ESA beitti sjálf­stæðum vald­heimildum sínum

Fyrirvaralaus athugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá fjárfestingafélaginu Skel í tengslum við meinta markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf, fyrsta slíka aðgerðin sem ráðist hefur verið í hér á landi, kemur um einu ári eftir að málinu lauk með úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. Húsleit ESA, framkvæmd í gær og fjöldi manns kom að, er gerð í samræmi við ákvæði samkeppnislaga um sjálfstæða heimild stofnunarinnar til að framfylgja samkeppnisreglum EES-samningsins á Íslandi – og þarf hún ekki til þess úrskurð dómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×