Viggó færir sig um set á nýju ári Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. desember 2024 11:02 Viggó Kristjánsson mun leika með HC Erlangen á nýju ári. HC Erlangen Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson mun yfirgefa DHfK Leipzig yfir til HC Erlangen þegar nýtt ár gengur í garð.
Frá þessu var greint á heimasíðu HC Erlangen í gær, aðfangadag, en eftir því sem fram kemur á Handbolti.is voru forráðamenn Erlangen tilbúnir að greiða um 250 þúsund evrur fyrir örvhentu skyttuna. Það samsvarar um 36,4 milljónum íslenskra króna. Viggó, sem var samningsbundinn Leipzig til ársins 2027, hefur þó ekki lokið tíma sínum hjá félaginu alveg strax. Liðið tekur á móti Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni næstkomandi föstudag áður en hið árlega stórmótahlé tekur við. Seltirningurinn gengur svo í raðir HC Erlangen þann 1. janúar næstkomandi. Viggó nær því líklega örfáum æfingum með liðinu áður en hann kemur til móts við íslenska landsliðið sem mætir til leiks á HM í handbolta þann 16. janúar gegn Grænhöfðaeyjum. Gera má ráð fyrir því að Viggó verði í stóru hlutverki fyrir íslenska liðið á HM, sérstaklega í ljósi þess að Ómar Ingi Magnússon verður að öllum líkindum ekki með liðinu vegna meiðsla.
Þýski handboltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport María að gera Þóri að afa Fótbolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira