Enski boltinn

Willum í byrjunar­liðinu er Birmingham tók topp­sætið

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Willum er stór og stæðilegur framsækinn miðjumaður sem spilar lykilhlutverk hjá Birmingham á Englandi. 
Willum er stór og stæðilegur framsækinn miðjumaður sem spilar lykilhlutverk hjá Birmingham á Englandi.  Chris Radburn/PA Images via Getty Images

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði Birmingham, sem vann 2-0 gegn Burton og komst upp í efsta sæti ensku C-deildarinnar, stigi ofar og með leik til góða á liðið fyrir neðan. 

Jay Stansfield skoraði fyrra mark Birmingaham af vítapunktinum. Max Crocombe varð svo fyrir því óláni að setja boltann í eigið net í seinni hálfleik.

Willum var tekinn af velli á 89. mínútu. Hann hefur fest sig í sessi sem byrjunarliðsmaður á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Mikið púður var lagt í að fá hann í sumar, sem og aðra leikmenn, og liðið er á góðri leið með að ná markmiði sínu og fara upp um deild.

Þetta var sjötti deildarsigur Birmingham í röð, liðið hefur nú ekki tapað í heilan mánuð í öllum keppnum, er komið í efsta sæti deildarinnar og fór áfram í bikarkeppni neðri deilda og í þriðju umferð FA bikarsins.

Alfons Sampsted er einnig leikmaður Birmingham en hefur ekki verið í leikmannahópi á leikdegi síðan 9. nóvember. 

Í sömu deild, aðeins tveimur sætum neðar en Birmingham, er lið Wrexham sem Jón Dagði Böðvarsson leikur með. Hann var ekki heldur í leikmannahóp í dag og er líklega á förum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×