Lífið

Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Dóra var í 74 ára gömlum kjól frá ömmu sinni en Bára í sérsaumaðri dragt frá Sif Benedicta. Brúðarvendirnir voru frá Blómstru en hringarnir Aurum.
Dóra var í 74 ára gömlum kjól frá ömmu sinni en Bára í sérsaumaðri dragt frá Sif Benedicta. Brúðarvendirnir voru frá Blómstru en hringarnir Aurum. Íris Dögg

Dóra Júlía Agnarsdóttir, plötusnúður og blaðamaður, giftist Báru Guðmundsdóttur, meistaranema í klínískri sálfræði, við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í gær.

Bára og Dóra gerðu sig til á Parliament-hóteli og gátu þannig fylgst með gestunum ganga inn í Dómkirkjuna.

Starfsfólk Parliament stjanaði við stelpurnar fyrir og eftir brúðkaupið. Þær gátu síðan fylgst með gestunum streyma að.Íris Dögg

Dóra var í 74 ára gömlum kjól sem amma hennar hafði gift sig í 1950 og Bára í sérsaumaðri dragt frá Sif Benedicta. 

Stelpurnar voru sannarlega stórglæsilegar.

Litlu systur Báru voru hringaberar en brúðkaupshringarnir voru frá Aurum og brúðkaupsskartið frá Lovísu. Hjónin létu áletra „Þín Bára“ og „Þín Dóra“ inn í hringana.

Hjónin létu mynda sig í ljósagöngunum á Austurvelli eftir giftinguna áður en haldið var í Gamla bíó að fagna ástinni.Íris Dögg
Stelpurnar voru stórglæsilegar í brúðarmyndatökunni.Íris Dögg

Guðrún Karls Helgadóttir, biskup Íslands, gifti hjónin áður en hún hefur verið ötull stuðningsmaður hinsegin samfélagsins sem skiptir hjónin miklu máli.

GDRN og Magnús Jóhann og Stebbi Hilmars sungu undurfagurt í kirkjunni og svo tók Kristján Pálsson, afi Báru, lagið „Ég fann þig“ ásamt félögum sínum úr Karlakór Kópavogs. Samkvæmt heimildarmönnum fréttastofu var ekki þurrt auga í kirkjunni eftir flutninginn.

Brúðkaupsgestir tóku vel á móti nýgiftum hjónunum með stjörnuljósaskara.
Stjörnuljósadýrðin var ótrúlega flott að sjá.

Eftir giftinguna var haldið í veislu í Gamla bíó og á Petersen-svítunni. Emmsjé Gauti, Sigga Beinteins og Margrét Rán úr Vök skemmtu þar gestum á meðan DJ Gugga þeytti skífum.

Meðal gesta voru lögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, dansarinn Stella Rósenkranz, áhrifavaldurinn Birgitta Líf, Tara Sif Birgisdóttir dansari og fasteignasali, Lífsblaðamennirnir Svava Marín og Oddur Ævar og margir fleiri.

Emmsjé Gauti skemmti gestum í Gamla bíó.
Hjónin vönguðu undir fögrum söng Gauta Þeys, stigu nokkur spor og kysstust.
Villi Vill lét sig auðvitað ekki vanta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.