Sport

Mynda­syrpa: Glódís og for­setinn í hláturs­kasti á hófinu í Hörpu

Sindri Sverrisson skrifar
Halla Tómasdóttir forseti og Glódís Perla Viggósdóttir skellihlæjandi á hófinu í Hörpu í gærkvöld.
Halla Tómasdóttir forseti og Glódís Perla Viggósdóttir skellihlæjandi á hófinu í Hörpu í gærkvöld. vísir/Hulda Margrét

Gleðin var við völd í Hörpu í gærkvöld þegar fremsta íþróttafólk landsins var heiðrað fyrir frammistöðu sína á nýliðnu ári. Hulda Margrét ljósmyndari smellti myndum af verðlaunahöfum, forseta Íslands og öðrum góðum gestum.

Glódís Perla Viggósdóttir var stjarna kvöldsins en hún var útnefnd íþróttamaður ársins og hlaut fullt hús stiga í kjörinu, sem Samtök íþróttafréttamanna standa að.

Karlalið Vals í handbolta var valið lið ársins, Þórir Hergeirsson var valinn þjálfari ársinsBjörg Elín Guðmundsdóttir íþróttaeldhugi ársins og Sigurbjörn Bárðarson tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ.

Hér að neðan má sjá myndasyrpu frá kvöldinu.

Knapinn Sigurbjörn Bárðarson smellti kossi á kæra eiginkonu sína, Fríðu Steinarsdóttur, og þakkaði henni öðrum fremur eftir að hafa verið tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ.vísir/Hulda Margrét
Glódís Perla Viggósdóttir er besti miðvörður heims samkvæmt úttekt The Guardian og einnig samkvæmt Ballon d'Or kjörinu.vísir/Hulda Margrét
Björg Elín Guðmundsdóttir var útnefnd Íþróttaeldhugi ársins 2024.vísir/Hulda Margrét
Systur Þóris Hergeirssonar tóku við viðurkenningu fyrir hans hönd eftir að hann var valinn þjálfari ársins.vísir/Hulda Margrét
Sylvía Rós Sigurðardóttir, kærasta Orra Steins Óskarssonar, tók við viðurkenningu fyrir hans hönd. Þau eiga spennandi ár í vændum því von er á stúlkubarni í júní.vísir/Hulda Margrét
Eygló Fanndal Sturludóttir með viðurkenningu sína fyrir að hafa verið í hópi tíu bestu íþróttamanna ársins á Íslandi. Hún hafnaði í 3. sæti í kjörinu.vísir/Hulda Margrét
Efstu þrjár í kjörinu: Eygló Fanndal Sturludóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Sóley Margrét Jónsdóttir.vísir/Hulda Margrét
Anton Sveinn McKee var í hópi tíu efstu í kjörinu á sínu síðasta ári sem afreksmaður í sundi.vísir/Hulda Margrét
Glódís Perla Viggósdóttir og Halla Tómasdóttir forseti léttar í lund.vísir/Hulda Margrét
Íþróttamaður ársins 2024.
Ingi Björn Albertsson, afi Alberts Guðmundssonar, tók við viðurkenningu fyrir hans hönd.vísir/Hulda Margrét
Eygló Fanndal Sturludóttir og Sóley Margrét Jónsdóttir áttu báðar magnað íþróttaár og voru á meðal þriggja efstu í kjörinu.vísir/Hulda Margrét
Halla Tómasdóttir forseti er verndari íþróttahreyfingarinnar og hún gladdist með Glódísi Perlu í gær.vísir/Hulda Margrét
Eygló Fanndal Sturludóttir stillir sér upp á rauða dreglinum.vísir/Hulda Margrét
Glódís Perla Viggósdóttir með kærasta sínum, Kristófer Eggertssyni, sem hún þakkaði sérstaklega í verðlaunaræðu sinni.vísir/Hulda Margrét
Karlalið Vals í handbolta var valið lið ársins og sendi öfluga fulltrúa á svæðið.vísir/Hulda Margrét
Glódís Perla Viggósdóttir með verðlaunastyttuna.vísir/Hulda Margrét
Alexander Júlíusson tók til máls fyrir hönd Evrópubikarmeistara Vals og benti á að frábær árangur liðsins hefði sína galla, því leikmenn væru sífellt teknir frá liðinu og út í atvinnumennsku.vísir/Hulda Margrét
Sylvía Kristínardóttir, Leo Speight, Ingibjörg Erla Grétarsdóttir og Sveinn Speight. Leo og Ingibjörg áttu frábært ár í taekwondo.vísir/Hulda Margrét
Á hófinu gladdist saman fólk úr ólíkum greinum. Ingibjörg Helga Arnardóttir, Sigurbjörg Fjölnisdóttir, Sólveig Jónsdóttir og Kristín Birna Ólafsdóttir eru hér saman.vísir/Hulda Margrét
vísir/Hulda Margrét
Auður, Hansína, Álfheiður, Petra og Birna í partýinu áður en verðlaunaafhendingin hófst.vísir/Hulda Margrét
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, skemmtu sér vel á hátíðinni í Hörpu.vísir/Hulda Margrét
Kristján Möller, Oddný Jóhannsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hrannar Arnarsson og Steinþór Einarsson.vísir/Hulda Margrét
Halldóra María Einarsdóttir og Ragnhildur Skúladóttir.vísir/Hulda Margrét
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, nýr ráðherra íþróttamála, í góðum félagsskap.vísir/Hulda Margrét
Olga Bjarnadóttir, Hanna Carla og Rakel Magnúsdóttir.vísir/Hulda Margrét
Ingibjörg, María og Valdimar Leó.vísir/Hulda Margrét
Ólafur Stefánsson, Róbert Geir Gíslason og Guðmundur B. Ólafsson eru sjálfsagt komnir með hugann við HM í handbolta sem brátt hefst.vísir/Hulda Margrét
vísir/Hulda Margrét
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ.vísir/Hulda Margrét
Ásta, Hrannar og Heiða Björg.vísir/Hulda Margrét
Glódís Perla Viggósdóttir með landsliðsþjálfaranum Þorsteini Halldórssyni og formanni KSÍ, Þorvaldi Örlygssyni.vísir/Hulda Margrét
Þórir Hergeirsson sendi myndbandskveðju frá Noregi.vísir/Hulda Margrét
Agnar Smári Jónsson glaðbeittur með skjöldinn sem hann og félagar hans í liði ársins hlutu.vísir/Hulda Margrét
Eunice Quason, mamma Sveindísar Jane Jónsdóttur, tók við viðurkenningu fyrir hennar hönd.vísir/Hulda Margrét
Fimleikakonan Ásta Kristinsdóttir var á meðal tíu efstu í kjörinu.vísir/Hulda Margrét
Óskar Bjarni Óskarsson varð í 2. sæti í kjörinu á þjálfara ársins, eftir árangur sinn með karlalið Vals í handbolta sem var valið lið ársins. Valsmenn urðu Evrópubikarmeistarar í fyrra.vísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

Þórir Her­geirs­son þjálfari ársins

Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta, er þjálfari ársins 2024 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld. Þá var Þórir kjörinn þjálfari ársins í Noregi.

Karlalið Vals er lið ársins 2024

Karlalið Vals í handbolta var valið lið ársins 2024 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×