Erlent

Að minnsta kosti hundrað hafa dáið ofan í lokaðri námu

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar og öryggisverðir við op að gullnámunni. Fleiri en fimm hundruð menn eru sagðir vera enn þar niðri.
Lögregluþjónar og öryggisverðir við op að gullnámunni. Fleiri en fimm hundruð menn eru sagðir vera enn þar niðri. AP/Denis Farrell

Að minnsta kosti hundrað menn eru látnir úr hungri og vökvaskorti ofan í ólöglegri gullnámu í Suður-Afríku. Lögregluþjónar hafa setið um námuna um langt skeið og hafa mennirnir ofan í henni ekki haft aðgang að matvælum eða vatni frá því í nóvember.

Frá því umsátrið hófst í nóvember hafa fjölmargir menn komið upp úr námunni og verið handteknir. Leiðtogar hjálparsamtaka sem reynt hafa að aðstoða mennina í námunni segja að þar séu enn rúmlega fimm hundruð menn.

Að minnsta kosti hundrað eru sagðir hafa dáið ofan í námunni og voru lík átján þeirra sótt um og eftir helgi, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Lögreglan segir mennina hafa neitað að koma út úr námunni en áðurnefndir leiðtogar hjálparsamtaka segja lögregluna hafa fjarlægt reipi sem mennirnir notuðu til að komast inn í námuna og úr henni.

Menn sem handteknir voru þegar þeir komu upp úr námunni í Stilfontein í morgun.AP/Themba Hadebe

Þá unnu samtökin dómsmál gegn lögreglunni í desember um að lögreglan mætti ekki koma í veg fyrir að mennirnir fengu mat og vatn. Óljóst er hve mikið af matvælum þeir hafa fengið síðan þá.

Fréttaveitan hefur eftir talsmanni lögreglunnar á svæðinu að enn sé verið að staðfesta hve mörg lík hafi fundist og hve margir hafi gefið sig fram við lögreglu. Vonast sé til þess að hægt sé að binda enda á umsátrið

Sjá einnig: Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu

Talið er að ólögleg námustarfsemi kosti Suður-Afríku gífurlega mikla peninga á ári hverju. Yfirvöld segja að oft sé um menn frá öðrum löndum að ræða og þá sé líklega um skipulagða glæpastarfsemi að ræða og eru hópar þungvopnaðra manna oft sagðir viðloðnir starfsemina.

Mennirnir eru einnig sagðir valda vandræðum í nærliggjandi samfélögum, þar sem þeir hafa verið sakaðir um glæpi eins og rán og nauðganir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×