Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. janúar 2025 20:00 Strákarnir í Tónhyl Akademíu stefna langt. Aðsend Strákarnir í Tónhyl Akademíu eru allir í kringum átján ára aldur og lifa og hrærast í heimi tónlistarinnar. Þeir voru að senda frá sér plötu sem hefur slegið í gegn og á sama tíma seldu þeir upp á tónleika í Gamla Bíói. Blaðamaður ræddi við þessa upprennandi tónlistarmenn.
Síðastliðin ár hafa strákarnir verið iðnir við útgáfu á tónlist og hafa sömuleiðis komið víða fram. Þeir sendu frá sér tónlistarmyndband í fyrra við lagið Ráðinn og héldu stórt frumsýningarteiti í Smárabíói. Platan þeirra KAPITAL kom út 10. janúar síðastliðinn og hafa nokkur lög náð góðri hlustun á streymisveitunni Spotify. Hér má heyra vinsælasta lag plötunnar LOKUÐ AUGU: Klippa: Tónhylur Akademía - Lokuð augu Hvernig leggjast tónleikarnir í ykkur? Gríðarlega vel. Við erum með það markmið að þessir tónleikar verði miklu betri en þeir síðustu. Fleiri ljós, ný tónlist og fleira. Bjuggust þið við því að selja upp svona hratt? Við héldum tónleika í fyrra sem gengu vel en maður veit aldrei við hverju maður má búast. Við gerðum aldrei ráð fyrir að þetta myndi gerast svona hratt. View this post on Instagram A post shared by Tónhylur Akademía (@tonhylur.akademia) Hvað finnst ykkur hafa verið lærdómsríkast í tónlistarbransanum síðan þið byrjuðuð? Það sem okkur finnst hafa verið lærdómsríkt er hvað þolinmæðin skiptir miklu máli og það að gefast ekki upp. Líka hvað það skiptir miklu máli að leggja inn vinnuna því maður fær oftast út það sem maður leggur í hlutina. Hvað finnst ykkur skemmtilegast við tónlistina? Það er skemmtilegast að fá að vinna við það sem maður hefur áhuga á með bestu vinum sínum. Öll skrefin í ferlinu eru líka skemmtileg, allt frá því að semja yfir í að koma henni út og svona. Það er líka gaman að fá viðbrögð frá fólki þegar tónlistin kemur út. Svo verðmætt að fá að tjá sig í gegnum tónlistina. En mest krefjandi? Það er erfiðast þegar maður er með lokafrest (e. deadline) og sá tími er að nálgast. Þá kemur oft stress og maður fer að efast um hlutina og svona. Hvernig gekk að semja EP plötuna? Voruð þið allir sammála í ferlinu? Það gekk mjög vel að semja plötuna. Það eru auðvitað ekkert alltaf allir sammála en við erum nokkuð góðir í að komast að niðurstöðu saman sem hópur. Það var samt í rauninni aldrei tekin einhver ákvörðun að semja lög fyrir plötu heldur eru þetta meira lög sem voru valin út frá fullt af lögum sem við höfum verið að semja. Hvaðan sóttuð þið innblásturinn fyrir lögin? Bæði úr daglegu lífi og svo bara frá hvor öðrum. View this post on Instagram A post shared by Tónhylur Akademía (@tonhylur.akademia) Hvað er annað fram undan? Fram undan er bara að gera meiri tónlist og spila meira. Við erum líka sjálfir að skoða það að gefa út meira sóló og byggja upp okkar eigin feril samhliða því að vinna með hópnum. Hvert stefnið þið? Stefnum bara á að halda áfram að gera góða tónlist og byggja upp tónlistarferilinn. Tónhyl Akademíu skipa: Söngvarar/rapparar: Kristján Ómarsson Saenz, Helgi Trausti Stefánsson, Maron Birnir Reynisson, Theodór Gísli Sigurgeirsson, Lindi Banushi og Egill Airi Daníelsson. Pródúserar: Tryggvi Þór Torfason og Ísak Örn Friðriksson. Albúmcover, videó og fleira: Ívar Páll Arnarsson og Stefán Logi Hermannsson.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gloria Steinem er látin Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira