Enski boltinn

Segir enga leið til baka fyrir Rashford hjá United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Að mati Rubens Amorim leggur Marcus Rashford ekki nógu hart að sér á æfingum.
Að mati Rubens Amorim leggur Marcus Rashford ekki nógu hart að sér á æfingum. getty/Martin Rickett

Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir Marcus Rashford muni líklega ekki spila aftur fyrir liðið eftir nýjustu ummæli knattspyrnustjórans Rubens Amorim um framherjann.

Rashford hefur ekki spilað fyrir United síðan 12. desember og eftir leikinn gegn Fulham á sunnudaginn sagði Amorim að hann myndi frekar nota markvarðaþjálfarann, hinn 63 ára Jorge Vidal, en leikmann sem legði sig ekki allan fram á æfingum. Ferdinand segir ekkert annað í stöðunni fyrir Rashford en að yfirgefa United.

„Ef ég væri leikmaðurinn sem stjórinn tjáði sig svona um mig, hjarta mitt, stolt og egó; það er vandræðalegt. Að einhver efist um framlag þitt, að þú leggir þig hundrað prósent fram fyrir liðið og styttir þér leið eru stór ummæli. Það er engin leið til baka fyrir Marcus eftir þetta,“ sagði Ferdinand.

„Ef hann kæmi til baka þýddi það að aðrir leikmenn gætu tekið fótinn af bensíngjöfinni og komist inn í liðið.“

Ferdinand segir að Rashford viti upp á sig skömmina. Hann hefði nefnilega gripið til varna ef ummæli Amorims væru röng.

„Fyrir mig, ef þetta væri ósatt myndi ég svara fyrir mig. Ég myndi halda blaðamannafund og láta vita að enginn myndi tala svona um mig,“ sagði Ferdinand.

„Þú gerir það bara ef þú ert hundrað prósent viss um að enginn geti sagt þetta um þig. Við lifum á tímum þar sem er einfalt að vera í beinum samskiptum við stuðningsmennina svo sagan komist rétt til skila. Ég væri til í að sitja með Marcusi, horfa í augun á honum og sjá hvort hann gæti sagt það. Ef þú getur það ekki verðurðu að líta í eigin barm.“

Rashford hefur verið hjá United síðan hann var sjö ára gamall og spilað rúmlega fjögur hundruð leiki fyrir liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×