Viðskipti innlent

Verð­bólga mjakast niður á við

Kjartan Kjartansson skrifar
Vetrarútsölur í verslunum eru víða í gangi sem hefur áhrif á verðlag.
Vetrarútsölur í verslunum eru víða í gangi sem hefur áhrif á verðlag. Vísir/Vilhelm

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27 stig á milli mánaða í janúar. Ársverðbólga mældist 4,6 prósent sem var 0,2 stigum minna en í desember. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um sextán prósent frá því í desember en áfengi og tóbak hækkuðu um tæp fjögur prósent.

Þegar húsnæðisliðurinn hefur verið tekinn út fyrir sviga lækkaði vísitalana um 0,29 prósent frá því í desember samkvæmt tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði mælist verðbólga þrjú prósent án húsnæðis. Ársverðbólga án húsnæðis mældist 2,8 prósent í desember.

Verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 3,9% (áhrif á vísitöluna 0,10%) og kostnaður vegna rafmagns og hita hækkaði um 3,5% (0,11%). Einnig hækkaði verð á bensíni og olíum um 3,6% (0,13%). Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,9% (-0,26%), húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 4,6% (-0,23%) og raftæki um 9,5% (-0,11%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 16,1% (-0,36%).

Verðbólga hefur lækkað umtalsvert frá því að hún náði hámarki sínu, 10,2 prósent í febrúar 2023. Frá því í janúar í fyrra hefur ársverðbólga hjaðnað um meira en tvö prósentustig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×