Bitist um miða á ball vinstri sinnaðs ábreiðubands Jakob Bjarnar skrifar 14. febrúar 2025 13:46 Bjartar sveiflur vopnaðir nikkum. Þeir eru ekki harmóníkkuhljómsveit en ljósmyndarinn Spessi var undir miklum áhrifum frá heimildarmynd sem hann gerði, um landsmót harmónikkuleikara, og Bjartar sveiflur slógu til. Og þeir sjá ekki eftir því. spessi Bjartar sveiflur er einhver athyglisverðasta og skemmtilegasta hljómsveit landsins. Hún heldur árlega svokallað „Prom-ball“ og var barist um miðar á ballið sem verður í kvöld. „
Já, því miður er uppselt,“ segir Arnar Ingi Viðarson trymbill en ballið hefst klukkan níu. Að sögn Arnars er þetta í fyrsta skipti sem Prom-ball sveitarinnar er haldið á Valentínusardegi í Gamla Bíói. Prom-böll Bjartra sveiflna, sem er árlegur viðburður, eru yfirleitt haldin í kringum jólin. Arnar telur víst að elskendur muni hópast á ballið en vinsældir hljómsveitarinnar hafa farið vaxandi. Í Björtum sveiflum eru þeir Arnar Ingi Viðarsson, Kári Einarsson, Loji Höskuldsson, Friðrik Margrétarson Guðmundsson, Ólafur Daði Eggertsson og Magnús Dagur Sævarsson. Hljómsveitin varð eiginlega til fyrir tilviljun. Sameiginleg vinkona þeirra allra hóaði saman mönnum úr mismunandi indí-, metal- og krútthljómsveitum til að spila á afmælinu sínu. Svo vel tókst til að þeir héldu hópinn. „Svo vatt þetta uppá sig. Við byrjuðum þarna í afmælisveislunni og okkur fannst fyndið að halda „prom“ sem er amerískt fyrirbæri sem við höfum algerlega farið varhluta af. Við veljum „prom-king“ og „prom-queen“ og allir glaðir.“ Fréttir af andláti sveitaballsins ótímabærar Á hverju ári er mikill viðbúnaður, Bjartar sveiflur efna til sérstakrar ljósmyndatöku í tilefni af árlegu „prom-balli“ og að þessu sinni var það sjálfur Spessi sem valdist til þess verks. Sjálfur hafði Spessi farið til Ísafjarðar 2002 og gert heimildarmynd um landsmót harmónikkuleikara. Spessi er enn undir miklum áhrifum frá þessari mynd og Bjartar sveiflur féllu fyrir hugmyndinni. Þeir eru nú mjög uppteknir af þessu fyrirbæri. „Ég veit ekki hvort ég má segja þetta en við erum vinstri sinnað „coverband“,“ segir Arnar Ingi. (Aldrei að segja við blaðamann að þú megir ekki segja eitthvað, hann hefur það eftir.) „Við erum að fara að spila á árshátíð hjá RÚV, við verðum í einhverjum brúðkaupum í sumar, einhverjum opnunum, afmælishátíðinni hjá Nýló … já, við erum ekkert mikið að fara úr 101. Á meðan er verið að biðja okkur að koma fram, þá er gaman.“ Og Arnar Ingi lofar leynigesti á ballið sem því miður er uppselt á. Og búið að loka gestalistanum. Arnar Ingi segir Bjartar sveiflur vilja halda uppi merkjum sveitaballamenningar sem er vitaskuld meira en að segja það; þetta er fyrirbæri sem margir hafa lýst dautt. Addi Fannar í Skímó kvað uppúr um það þegar Skítamórall hélt upp á 20 ára afmæli sveitarinnar: „Sveitaballamenningin held ég samt að sé dauð, við rétt náðum í skottið á henni,“ sagði Addi í samtali við Fréttablaðið í október 2009. En Arnar Ingi blæs á þetta. Hann segir hljómsveitina halda í hávegum það þegar menn koma saman og gera sér glaðan dag. Og ekki er nú verra ef það eru hljómsveitir sem notast við jaðarhljóðfæri. „Við viljum sýna þeim virðingu,“ segir Arnar en tekur þó fyrir að um sé að ræða harmónikkuhljómsveit. Eru ekki frægir sjálfir en fá fræga gesti Síðasta ár tók Ragnar Kjartansson vel valdar ábreiður af sínum ferli sem ásamt Purple Rain með Prince enda eru vel valdar paranir laga og gestasöngvarar eitthvað sem Bjartar sveiflur leggja mikla vinnu í útfæra og hanna rétt. „Við erum ekki frægir og þekkjum ekkert frægt fólk, svo að það er eingöngu undir blíðlega skrifuðum instagram skilaboðum komið hvort við fáum gestasöngvarana með okkur í lið eða ekki. Síðast fengum við Ragnar sem var mikil dásemd, sem og hjartaknúsarann Hreim í Land og sonum sem tók þungavigtarlagið Örmagna af mikilli innlifun ásamt þrumuslagarann Vöðvastæltur — lagapörun sem kannski lýsir grátbroslegum heimi þáverandi forsprakka „boy-banda“ í tvíeggja sverðinu sem var sveitaballarfárið í upphafi 21. aldarinnar,” segir Arnar Ingi og vill vera skáldlegur. Meðal annarra gestasöngvara frá Prom-kvöldum Bjartra sveifla má nefna Ásdísi Maríu, Nönnu Bryndísi, Selmu Björnsdóttur, Eygló Höskuldsdóttur, Rakel Mjöll, en Arnar Ingi er ófáanlegur til að gefa upp með hverjir stigi á sviðið með þeim þetta árið.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Næturlíf Menning Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Fleiri fréttir Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Sjá meira