Gísli stórkostlegur í toppslagnum Sindri Sverrisson skrifar 16. febrúar 2025 15:48 Gísli Þorgeir Kristjánsson var í aðalhlutverki hjá Magdeburg í gríðarlega mikilvægum sigri í dag. EPA-EFE/Piotr Polak Gísli Þorgeir Kristjánsson var í algjöru aðalhlutverki á spennandi lokakafla í toppslag Magdeburg og Melsungen í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag. Magdeburg vann leikinn 29-28.
Elvar Örn Jónsson og félagar í Melsungen eru enn á toppi deildarinnar, með 32 stig eftir 19 leiki, en aðeins tveimur stigum á undan Hannover og fjórum á undan Füchse Berlín og Kiel sem bæði eru að spila þessa stundina. Magdeburg er með í titilbaráttunni því liðið er nú með 23 stig eftir 16 leiki og hefur því til að mynda aðeins „tapað“ þremur stigum meira á tímabilinu en Melsungen. Magdeburg hafði frumkvæðið lengst af í leiknum í dag en spennan var hins vegar mikil. Elvar jafnaði metin í 25-25 þegar fjórar mínútur voru eftir en Gísli kom þá Magdeburg yfir strax í kjölfarið, með tveimur góðum mörkum í röð. Hann skoraði svo þriðja markið og kom Magdeburg í 28-26 tveimur mínútum fyrir leikslok, og átti línusendingu í næstu sókn þegar Magnus Saugstrup kom Magdeburg í 29-27 og aðeins mínúta eftir. Melsungen minnkaði fljótt muninn en Magdeburg tókst að láta tímann renna út og tryggja sér eins marks sigur. Gísli var næstmarkahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk, á eftir Matthias Musche sem skoraði níu, en Gísli var jafnframt með flestar stoðendingar eða sex talsins og ekkert marka hans kom af vítalínunni. Elvar Örn skoraði fimm mörk fyrir Melsungen og var meðal markahæstu manna en Elvar mun svo skipta yfir til Magdeburg í sumar. Arnar Freyr Arnarsson er enn að glíma við meiðslin sem kostuð hann HM, rétt eins og Ómar Ingi sem var ekki með Magdeburg.
Þýski handboltinn Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira