„Landbúnaður er almannahagsmunir og það er undir þeim formerkjum sem við ætlum að sameinast um að halda merkjum landbúnaðarins hátt á lofti,“ segir á vef Bændasamtakanna.
Fundurinn verður í beinu streymi
Ætla má að tilefni fundarins sé ostamálið svokallaða en umræða um tollflokkun pitsaosts hefur verið hávær síðan greint var frá því að Evrópusambandið hefði í fyrsta sinn sett Ísland á lista yfir viðskiptahindranir, sem útflutningsfyrirtæki í Evrópusambandsríkjum segjast beitt í ríkjum utan sambandsins. Ástæðan er ákvörðun Skattsins árið 2020 að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu.
Á dögunum sendu forsvarsmenn samtakanna sem að fundinum standa frá sér fréttatilkynningu þar sem komið var á framfæri hörðum mótmælum vegna áforma fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á tollflokkun mjólkurafurða eins og þær eru kynntar í áformaskjali í samráðsgátt stjórnvalda. Síðan þá hefur verið fallið frá áformunum.