Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. mars 2025 10:02 Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður réttindasamtakanna ÖBÍ, breyttist í A-týpu árið 2019, er ein þeirra sem elskar rjúkandi kaffibolla á morgnana og er ein þeirra sem á hlaupabretti sem endaði í hlutverki fatahengis. Vísir/RAX Alma Ýr Ingólfsdóttir, sem er menntaður lögfræðingur og starfar sem formaður ÖBÍ réttindasamtakanna, finnst gaman að hlæja og hlær mikið. Síðasta hláturskast sé þó ekki hægt að opinbera, það gæti einfaldlega vegið að mannorði hennar.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég er að vakna milli klukkan korter yfir sex og hálf sjö. Ég varð A týpa sumarið 2019 þegar sonur minn fæddist en fram að því var ég mikil B týpa. Ég er mjög stolt af þessum viðsnúningi og kann betur við mig sem A týpu.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég snúsa alltaf einu sinni og rýk svo fram og kveiki á kaffivélinni sem ég elska, fyrsti kaffibolli dagsins er bestur. Planið var alltaf að rjúka beint á hlaupabrettið eftir eitt snús en ég keypti það dýrum dómi fyrir nokkrum árum en það plan hefur alfarið vikið fyrir rjúkandi kaffibolla og yfirferð dagatalsins og þjónar því hlaupabrettið hlutverki fatahengis. Næst tekur við sturta og að henni lokinni er einkasonurinn vakinn með tilheyrandi knúsi og spjalli. Við tökum okkur góðan tíma í að spjalla og hafa okkur til áður en við skutlumst í leikskóla og vinnu. Fegurðin í því nærir mig vel út daginn.“ Hvenær og hvers vegna fékkstu algjört hláturskast síðast? „Ég hlæ mjög mikið og finnst það ofboðslega gaman. Ég er ekki viss um að það sé mér í hag að opinbera síðasta hláturskast, það kynni að vega illa að mannorði mínu. En ég hló hátt og mikið og það tók verulega á grindarbotninn. Ég bý svo vel að þekkja eingöngu skemmtilegt fólk og gladdi einstaka hárgreiðslukonan mín mig verulega í vikunni með góðum sögum af sjálfri sér.“ Alma er svo skipulögð að hún getur ekki einu sinni sofnað án þess að vera búin að ákveða fötin fyrir þau mæðgin daginn eftir. Alma er háð Outlook en þykist þessa dagana vera að reyna að bæta sig í Asana; eitthvað sem henni finnst þó óskaplega leiðinlegt.Vísir/RAX Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Verkefnin sem ég vinn í eru mjög fjölbreytt og satt að segja lýkur þeim ekki þannig. ÖBÍ eru regnhlífasamtök 40 fjölbreyttra aðildarfélaga og felast verkefni ÖBÍ í réttinda- og hagsmunabaráttu fatlaðs fólks. Vinnan felst mikið í aðhaldi og þrýstingi gagnvart stjórnvöldum, fræðslu og ráðgjöf sem á virkilega vel við mig. Í vikunni vorum við með mannréttindamorgun í Mannréttindahúsinu okkar ásamt Un Women um konur, frið og öryggi í breyttum heimi og fengum til okkar í panel embættis- og baráttufólk sem sögðu frá sínu starfi og upplifun hvað þetta varðar og mikilvægi inngildingar, samstöðu og samtals. Það var virkilega vel heppnað og gaman.” Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég gerði lítið hefði ég ekki Outlook og bækurnar mínar sem ég skrifa allt í. Ég er mjög skipulögð í eðli mínu og þrífst illa í kaós, nema það sé skipulagt. Ég er í raun háð Outlook en þykist vera að bæta mig í Asana, mér finnst það bara svo leiðinlegt. Ég er mikið á fundum hingað og þangað og þá reynir á gott skipulag. Ég get ekki farið að sofa nema ég sé búin að ákveða í hvaða fötum við mæðgin munum klæðumst þann daginn, það er kannski ekki skipulag heldur einhverskonar rugl en þannig hefur það alla tíð verið og óþarfi að hætta því núna.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég ætla alltaf að vera sofnuð fyrir klukkan 23, en það næst alltof sjaldan. Ég er elska að hlusta á hlaðvörp og sögur og á stundum erfitt með að hætta að hlusta og fara að sofa. Bölvaðir baugarnir eru einmitt tilkomnir vegna þessa agaleysis. En svo bæti ég mér þetta stundum upp og sofna með stráknum mínum og það er fátt betra.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Kjartan Sverrisson, framkvæmdastjóri Overcast, vaknar oft á undan vekjaraklukkunni og finnst þá gott að byrja daginn á því að grípa í bók. Enda sjúkur í að lesa og á oft erfitt með að stoppa sig í lestrinum á kvöldin. 1. mars 2025 10:02 Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Með svefnstyggan eiginmann læðist Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox á Íslandi, fram úr tvisvar í viku fyrir ræktina en gæðastundin sem hún sá fyrir sér að yrði síðan með dótturinni í bílnum alla morgna, hefur hún lært að snúist meira um aukasvefn fyrir menntaskólanemann. 22. febrúar 2025 10:02 Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Davíð Tómasson, framkvæmdastjóri Moodup og körfuboltadómari, segir stundum erfitt að ná sér niður í svefninn eftir að hafa verið að dæma leiki. Um þessar mundir sé hann líka að sofna óvenju seint sem hann segir skýrast af unglingastælum í sér. 15. febrúar 2025 10:01 Fermingarmyndin ekki til útflutnings Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, segir engan hasar á morgnana lengur. Þau hjónin séu tvö með latan hund og oftar en ekki er Hrönn svo heppin að eiginmaðurinn gefur henni fyrsta kaffibollann um það leyti sem hún fer fram úr. 8. febrúar 2025 10:02 Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, opinberar sök í smá prakkarastriki á Skaganum þegar hann var sex ára en almennt telur hann sig ekki hafa verið mikinn prakkara í æsku. Uppáhaldsmorgnarnir eru þegar hann byrjar daginn í golf hermi með félögunum. 1. febrúar 2025 10:01 Mest lesið „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Samstarf 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á „Höfum aldrei þurft að hugsa um þetta áður“ Finnsson fjölskyldan: „Það var samt eitthvað svo fallegt við þetta“ Sannfærð um að hún var Skoti í fyrra lífi Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Að líða eins og svikara í vinnunni „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ „Prófaðu að segja við AI: Ókei, ég vil að þú hjálpir mér í vinnunni“ Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Vaxtaverkir í golfi: Kylfingum fjölgar um þúsundir á ári SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Algengustu og neyðarlegustu mistökin í tölvupóstum Hinseginvottun: „Það er heldur engin kynjamerking á salernum fyrir fatlaða“ Gervihjónabönd: Að eiga vinnueiginmann eða vinnueiginkonu Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Slúbbertar hjá ríkinu: „Erum að skapa ófremdarástand“ Sjá meira
Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Kjartan Sverrisson, framkvæmdastjóri Overcast, vaknar oft á undan vekjaraklukkunni og finnst þá gott að byrja daginn á því að grípa í bók. Enda sjúkur í að lesa og á oft erfitt með að stoppa sig í lestrinum á kvöldin. 1. mars 2025 10:02
Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Með svefnstyggan eiginmann læðist Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox á Íslandi, fram úr tvisvar í viku fyrir ræktina en gæðastundin sem hún sá fyrir sér að yrði síðan með dótturinni í bílnum alla morgna, hefur hún lært að snúist meira um aukasvefn fyrir menntaskólanemann. 22. febrúar 2025 10:02
Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Davíð Tómasson, framkvæmdastjóri Moodup og körfuboltadómari, segir stundum erfitt að ná sér niður í svefninn eftir að hafa verið að dæma leiki. Um þessar mundir sé hann líka að sofna óvenju seint sem hann segir skýrast af unglingastælum í sér. 15. febrúar 2025 10:01
Fermingarmyndin ekki til útflutnings Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, segir engan hasar á morgnana lengur. Þau hjónin séu tvö með latan hund og oftar en ekki er Hrönn svo heppin að eiginmaðurinn gefur henni fyrsta kaffibollann um það leyti sem hún fer fram úr. 8. febrúar 2025 10:02
Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, opinberar sök í smá prakkarastriki á Skaganum þegar hann var sex ára en almennt telur hann sig ekki hafa verið mikinn prakkara í æsku. Uppáhaldsmorgnarnir eru þegar hann byrjar daginn í golf hermi með félögunum. 1. febrúar 2025 10:01