Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. mars 2025 14:35 Eyjólfur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra síðan í desember. Vísir/Vilhelm Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 140 milljónum til þrettán verkefna á landsbyggðinni til að efla byggðir landsins. Níu af verkefnunum þrettán eru í kjördæmi ráðherrans.
Fram kemur í tilkynningu á vef ráðuneytisins að nítján umsóknir hafi borist fyrir um 437 milljónir króna. Áætlaður heildarkostnaður verkefnanna sé rúmlega 800 milljónir króna. Lista yfir verkefnin þrettán má sjá að neðan. Níu þeirra koma úr Norðvesturkjördæmi sem er kjördæmi Eyjólfs Ármannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Markmiðið með styrkveitingum er í tilkynningunni sagt vera að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geti sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtist einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin séu hafa varanleg áhrif, séu atvinnuskapandi og hvetji til nýsköpunar verði í forgangi. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Valnefndina skipuðu þau Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, sem jafnframt var formaður, Elín Gróa Karlsdóttir, fjármálastjóri hjá Ferðamálastofu og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. „Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun ráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna,“ segir á vef ráðuneytisins. Auðarstofa – Nýsköpunar- og þekkingarsetur í Dalabyggð Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Styrkupphæð: 13,5 m.kr. Verkefnið snýst um að efla Nýsköpunarsetur Dalabyggðar til muna með því að standsetja verklegt rými og setja þar einnig á legg þekkingarsetur. Fyrsta árið verður þróuð stefna og áherslur fræðasetursins, unnið að hönnun rýmisins sem hýsa mun fræða- og nýsköpunarsetrið ásamt því að unnið yrði að endurbótum á rýminu. Seinna árið yrði unnið markmisst að því að efla starfsemi í setrinu með áherslu á fjölgun sérfræðistarfa og skipulagt fræðsluátak fyrir frumkvöðla, atvinnurekendur og íbúa. „Hver vegur að heiman er vegurinn heim“ Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Vesturlandi. Styrkupphæð: 10 m.kr. Verkefnið snýst um að draga fram og miðla tækifærum innan Dalabyggðar, með það að markmiði að efla byggðafestu. Byggðafesta stendur og fellur með núverandi íbúum og mikilvægt er að sporta við brottflutningi íbúa með öllum ráðum. Þetta á að gera með fjölbreyttum aðferðum, með því að ná bæði til ungs fólks og fullorðinna íbúa. Þróuð veður kennsla í átthagafræði, skipulagðar fjölbreyttar starfskynningar, búið til tengslanet við fráflutt ungmenni, unnið að vönduðu margmiðlunarefni og skipulögð vönduð fræðsluröð sem eykur þekkingu íbúa á heimabyggð sinni. Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga. Styrkupphæð: 9,4 m.kr. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinuðust árið 2024. Svæðið hefur átt undir högg að sækja í áratugi og umfjöllun oft reynst íbúum erfið. Verkefnið miðar að því að styrkja sjálfsmynd svæðisins og vinna með sveitarfélaginu og íbúum að því að skapa framtíðarsýn fyrir nýtt sveitarfélag og byggja á henni ímyndarsókn. Tenging fjárfesta við innviði og auðlindir á Vestfjörðum Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga. Styrkupphæð: 10,6 m.kr. Verkefnið gengur út á að auka fjölbreytni í atvinnulífi á Vestfjörðum með því að kynna vannýttar auðlindir og staðsetningar fyrir fjárfestum sem hafa áhuga og getu til nýfjárfestinga í matvælaframleiðslugreinum eins og landeldi, smáþörungaframleiðslu og líftækni, ásamt öðrum greinum sem styðja við verðmætasköpun á svæðinu. Samræmd móttaka og inngilding íbúa af erlendum uppruna á Vestfjörðum Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga. Styrkupphæð: 10 m.kr. Verkefnið snýr að því að þróa samræmda móttökuferla fyrir öll sveitarfélög á Vestfjörðum til að veita nýjum íbúum betri yfirsýn yfir þjónustu, félagsstarf, menningu og samfélög. Annar hlutinn snýr að því að vinna með sveitarfélögum að því að finna leiðir innan stjórnsýslunnar til þess að raddir íbúa af erlendum uppruna nái að heyrast. Orkuskipti í Húnaþingi vestra Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Styrkupphæð: 7,2 m.kr. Undirbúningur og greining á fýsileika á uppsetningu staðarveitna tengdum varmadælum, í eigu og rekstri Hitaveitu Húnaþings vestra, á köldum svæðum í dreifbýli í Húnaþingi vestra þar sem ekki er kostur að tengjast dreifikerfi hitaveitu. Gamli bærinn á Blönduósi – aðdráttarafl ferðamanna Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Styrkupphæð: 13,4 m.kr. Markmið verkefnisins er að hanna sýn/leikmynd á endurgerð gamla bæjarins á Blönduósi og þróa söguleiðsögn með það að markmiði að efla ferðaþjónustu á svæðinu og skapa ný störf í sveitarfélagi sem stendur frammi fyrir miklum áskorunum í atvinnumálum. Þekkingargarðar á Norðurlandi vestra Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Styrkupphæð: 8 m.kr. Verkefnið miðar að stofnun þekkingargarða á Norðurlandi vestra með höfuðstöðvar á Sauðárkróki. Garðarnir munu tengja atvinnulíf, háskólasamstæðu Háskóla Íslands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og sveitarfélög. Áherslan er á sjálfbæra matvælaframleiðslu sem byggir á styrkleikum svæðis. Hjólin eru að koma – tækifæragreining fyrir sjálfbæra hjólaferðaþjónustu á Norðurlandi vestra Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Styrkupphæð: 4,8 m.kr. Í verkefninu verður unnin tækifæragreining fyrir hjólaferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Þar verða þjónustuframboð og landfræðilegir möguleikar svæðisins mátaðir við þær tegundir hjólaferðamennsku, sem eru útbreiddastar og þeir innviðir og sú þjónusta kortlögð, sem vantar til að mæta þörfum þessa sístækkandi markhóps. Með þessu vill landshlutinn marka sér sérstöðu sem áfangastaður hjólreiðafólks og skapa tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila svæðisins í þéttbýli jafnt sem dreifbýli, sem allflest teljast til ör- og smáfyrirtækja, að þjónusta þennan hóp. Ráðhúsið á Raufarhöfn, atvinnu- og samfélagssetur Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Styrkupphæð: 8 m.kr. Með atvinnu- og samfélagssetri er verið að skapa aðstöðu til fjölbreyttari atvinnustarfsemi á staðnum, laða að frumkvöðla og nema, efla menntastig þorpsins og styrkja stoðir þess sem fyrir er. Fjölbreytt starfsemi er þegar í húsinu, m.a. SSNE, Norðurþing, Orkuveita Húsavíkur, Landsbankinn og Íslandspóstur og því góður grunnur. Endurnýjun hluta stofnlagnar frá borholu Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs við Skógalón Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Styrkupphæð: 15 m.kr. Stofnlögnin frá borholu Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs við Skógalón er 27 ára gömul plastlögn sem er farin að bila og flutningsgetan er takmörkuð. Leggja á nýja stofnlögn í stálefni en með því eykst flutningsgetan og endingartími lagnarinnar. Samvinnuhús í jaðarbyggðum á Austurlandi – Samvinnuhús á Vopnafirði Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Austurlandi. Styrkupphæð: 14,1 m.kr. Markmiðið er að setja upp samvinnurými á Vopnafirði ásamt því að kortleggja stöðu samvinnurýma á Austurlandi. Með samvinnurýmum í öllum byggðakjörnum Austurlands verður til aðstaða til atvinnu; fyrir óstaðbundin störf, ný störf og störf í ófullnægjandi aðstöðu. Þar með fjölgar tækifærum fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi á svæðinu, óstaðbundin störf og eflingu menntastigs byggðanna með aðstöðu til fjarnáms. Byggðaþróun og efling samfélags í Grindavík og nærliggjandi svæða Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum. Styrkupphæð: 16 m.kr. Tilgangur verkefnisins er að aðstoða Grindavík við að ná vopnum sínum aftur, styrkja bæjarfélagið í þeim verkefnum sem framundan eru og styrkja samstarfið við önnur sveitarfélög á svæðinu.
Flokkur fólksins Dalabyggð Byggðamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vesturbyggð Húnaþing vestra Skagafjörður Norðurþing Grindavík Mest lesið Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Bílstjórinn þrettán ára Innlent Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Innlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Innlent Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Erlent Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign Innlent Fleiri fréttir Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Sjá meira