Skoraði tuttugu stig í sextugasta leiknum í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. mars 2025 11:31 Shai Gilgeous-Alexander í loftfimleikum. ap/Charles Krupa Oklahoma City Thunder tryggði sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar með sigri á meisturum Boston Celtics, 112-118, í nótt. Aðalstjarna Oklahoma náði merkum áfanga í leiknum.
Einu sinni sem oftar fór Shai Gilgeous-Alexander fyrir liði OKC. Hann skoraði 34 stig, tók fimm fráköst og gaf sjö stoðsendingar. ⛈️ SHAI GILGEOUS-ALEXANDER SHINES ⛈️⚡️ 34 PTS⚡️ 5 REB⚡️ 7 ASTIt's his 60th consecutive 20+ PT game 🤯 pic.twitter.com/dg6cHxNAqx— NBA (@NBA) March 13, 2025 Þetta var sextugasti leikurinn í röð þar sem Gilgeous-Alexander skorar að minnsta kosti tuttugu stig. Hann komst þar með í ansi góðan hóp. Auk Gilgeous-Alexanders hafa sex leikmenn afrekað það að skora allavega tuttugu stig í sextíu leikjum í röð í sögu NBA. Þetta eru þeir Kevin Durant (64 leikir tímabilið 2015-16), Kobe Bryant (62 leikir 2005-06), Michael Jordan (69 leikir 1990-91), Kareem Abdul-Jabbar (62 leikir 1971-72), Wilt Chamberlain (80 leikir 1961-62 og 1963-64) and Oscar Robertson (76 leikir 1963-64). Sigurinn í nótt var sá 54. hjá Oklahoma í vetur. Liðið er langefst í Vesturdeildinni og öruggt með sæti í úrslitakeppninni. Chet Holmgren átti einnig góðan leik fyrir Oklahoma í nótt en hann skoraði 23 stig og tók fimmtán fráköst. Jayson Tatum var stigahæstur hjá Boston með 33 stig auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Boston er í 2. sæti Austurdeildarinnar með 47 sigra og nítján töp.
NBA Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira