Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Sindri Sverrisson skrifar 30. október 2026 20:32 Thea Imani Sturludóttir, nýjasta 100 leikja landsliðskona Íslands, og þær Sandra Erlingsdóttir, Lovísa Thompson og Þórey Anna Ásgeirsdóttir þurftu allar að sinna lærdómnum á síðasta stórmóti, HM fyrir ári síðan. vísir/Ágúst Íslenskar landsliðskonur í handbolta halda nú á stórmót í desember fjórða árið í röð. Stór galli við tímasetningu mótanna er að margir leikmenn eru einnig námsmenn og þurfa jafnvel að taka mikilvæg lokapróf á leikdegi.
Þetta var til að mynda raunin á HM fyrir ári síðan þar sem landsliðskonur Íslands sátu sveittar yfir námsbókum eða við fartölvuna á milli leikja þegar best væri auðvitað að þær gætu hvílst og einbeitt sér alfarið að undirbúningi fyrir leikina. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari segir að vinna sé búin að vera í gangi í þessum efnum með það í huga að EM í Rúmeníu í desember fái forgang og að hægt verði að færa til próf og verkefnaskil vegna mótsins. „AMÍ [Afreksmiðstöð Íslands] og ÍSÍ [Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands] fóru í það með okkur að vinna með skólunum að lausn á þessu og ég veit að það samtal gengur ágætlega,“ sagði Arnar við Vísi í dag eftir að hafa kynnt EM-hópinn sinn. Fjölgað hefur í hópi þeirra landsliðskvenna sem spila með erlendum félagsliðum en það kemur ekki í veg fyrir að það séu margir námsmenn í hópnum. „Ég veit að stelpurnar eru í ágætu sambandi við sína kennara og sína deildarstjóra þannig að við þurfum ekki að lenda í þessari stöðu aftur. Að þessar stelpur fái frest á prófum og smá svigrúm til þess að njóta þess að vera á stórmóti og setja alla einbeitinguna á það,“ sagði Arnar í lok viðtalsins hér að neðan. Klippa: Arnar klár með hópinn sem mætir heimsklassaþjóðum Eins og fyrr segir hafa leikmenn jafnvel þurft að þreyta lokapróf sama dag og þær hafa spilað leiki á stórmóti. „Það er nóg að gera. Maður fær engar pásur sko. Kennarinn minn er búinn að sýna mikinn skilning en ég veit að það voru ekki allar jafn heppnar með það,“ sagði Katrín Tinna Jensdóttir við Vísi á HM í fyrra. „Mér finnst algjört lágmark að skólar sýni þessu skilning og komi eins vel til móts við leikmenn og hægt er,“ bætti hún þá við. Arnar benti á það á HM í fyrra að í raun ættu leikmenn frekar skilið umbun fyrir að spila fyrir Íslands hönd á stórmóti frekar en að það kæmi niður á þeim: „Áreitið er nóg fyrir og það er mikið álag á þeim í kringum handboltann. Þess væri óskandi að þessu væri háttað öðruvísi, að þessar stelpur fengju eitthvað fyrir það að vera í þessu, fengju eitthvað fyrir það að vera hérna á heimsmeistaramóti og það væri borin aðeins meiri virðing fyrir því,“ sagði Arnar á HM fyrir ári.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Tengdar fréttir Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Samningur Arnars Péturssonar, landsliðsþjálfara kvenna í handbolta, rennur út eftir komandi Evrópumót. Hann segist vonast eftir nýjum samningi frá sambandinu og formaður HSÍ gaf því undir fótinn að yfirlýsingar væri að vænta varðandi framhaldið. 30. október 2026 12:42 Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur nú valið leikmannahópinn sem fer á EM kvenna í handbolta. Þetta verður fjórða stórmót stelpnanna okkar í röð. 30. október 2026 12:23 Svona var EM-fundur Arnars Arnar Pétursson tilkynnti í dag leikmannahóp Íslands sem heldur á EM kvenna í handbolta í desember. 30. október 2026 11:46 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Sjá meira
Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Samningur Arnars Péturssonar, landsliðsþjálfara kvenna í handbolta, rennur út eftir komandi Evrópumót. Hann segist vonast eftir nýjum samningi frá sambandinu og formaður HSÍ gaf því undir fótinn að yfirlýsingar væri að vænta varðandi framhaldið. 30. október 2026 12:42
Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur nú valið leikmannahópinn sem fer á EM kvenna í handbolta. Þetta verður fjórða stórmót stelpnanna okkar í röð. 30. október 2026 12:23
Svona var EM-fundur Arnars Arnar Pétursson tilkynnti í dag leikmannahóp Íslands sem heldur á EM kvenna í handbolta í desember. 30. október 2026 11:46