Alfreð fyrsti íslenski þjálfarinn til að tapa stigi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2025 18:47 Alfreð Gíslason er alltaf líflegur og litríkur á hliðarlínunni í leikjum þýska landsliðsins. AFP/Bo Amstrup Alfreð Gíslason stýrði þýska landsliðinu í kvöld í jafntefli á móti Austurríki á útivelli í undankeppni Evrópumótsins í handbolta.
Leikurinn endaði 26-26 eftir að þýska landsliðið hafði verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13-11. Þjóðverjar höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum en eru nú með eins stigs forskot á Austurríki á toppi riðilsins. Austurríska liðið er líka taplaust en hefur gert tvö jafntefli í þremur leikjum. Þjóðverjar voru með forystuna nær allan leikinn og 26-25 yfir þegar tvær mínútur voru eftir. Austurríkismenn jöfnuðu metin og þýska liðinu mistókst að nýta síðustu sókn sína. Marko Grgic tók síðustu tvö skot þýska liðsins og klikkaði á báðum. Sebastian Frimmel skoraði jöfnunarmarkið úr vítakasti sextán sekúndum fyrir leikslok. Jafnteflið hjá Alfreð þýðir líka að íslensku þjálfararnir í undankeppni EM í handbolta 2026, eru ekki lengur með fullt hús. Fram að leiknum í kvöld höfðu íslensku þjálfararnir unnið alla átta leiki sína. Snorri Steinn Guðjónsson er með íslenska landsliðið á toppnum í riðli þrjú með þrjá sigra í þremur leikjum og 20 mörk í plús. Ísland er með fjögurra stiga forystu því öll hin liðin þrjú hafa tvö stig. Dagur Sigurðsson er með króatíska landsliðið á toppnum í riðli fimm með þrjá sigra í þremur leikjum og 23 mörk í plús. Króatía er með tveggja stiga forystu á Tékkland.
Þýski handboltinn EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira