„Hver einasti blettur ætti að vera hluti af leiknum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2025 10:00 Arsenal konurnar Chloe Kelly og Leah Williamson fagna marki en til vinstri má sjá auglýsinguna vegna herferðarinnar @arsenalwfc/Getty/Visionhaus/ Kvennalið Arsenal í fótbolta fer fyrir nýrri herferð í Bretlandi þar sem stefnan er sett á að eyða skömminni hjá fótboltastelpum tengdu því að vera á blæðingum.
Herferðin hefur fengið nafnið „Hver einasti blettur ætti að vera hluti af leiknum“ og er í samstarfi við Persil sem er þvottafyrirtæki. „Blóð er blóð. hvort sem það kemur úr nefi, hnénu eða leginu þínu,“ segir í kynningu á herferðinni. Stjörnurnar Leah Williamson, Beth Mead, Katie McCabe og Kim Little eru allar í myndbandinu þar sem gert mikið úr tvískinnungnum að blóð eftir tæklingu þykir vera viðurkenningarmerki en á móti fylgir það mikil skömm ef um er að ræða blóð vegna tíðablæðinga. Kannanir í Bretlandi sýna að 78 prósent táningsstúlkna hafa hætt í íþróttum vegna áhyggna vegna blæðinga. Arsenal stendur líka fyrir vinnustofum sem hafa það markmið að kenna og styrkja næstu kynslóð til að spila án þess að hafa áhyggjur af eða skammast sín fyrir það að vera á blæðingum. Stefnan er sett á það að kenna strákum jafn sem stúlkum á sama tíma þannig að bæði kynin séu með það á tandurhreinu að blæðingar eru náttúrulegur hluti af lífinu og engin ástæða fyrir að skammast sín fyrir. View this post on Instagram A post shared by Arsenal (@arsenal) View this post on Instagram A post shared by Arsenal (@arsenal)
Enski boltinn Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira