Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 18. mars 2025 13:31 Aldrei fór ég suður fagnaði tuttugu árum um páskana í fyrra. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fagnaði tuttugu ára afmæli sínu á páskunum í fyrra. Fyrsta hátíðin var haldin í bríaríi í sushiverksmiðju á Ísafirði árið 2004, þar sem hátíðarhaldarar höfðu ekki miklar áætlanir og settu upp tjöld til einnar nætur. Nú er hátíðin hins vegar orðin fjölskylduvæn tónlistarveisla og er að hefja sinn þriðja áratug með endurbættri ásýnd.
Aldrei tilkynnti þá listamenn sem koma fram í Kampa-skemmunni við Aldrei fór ég suður götu á Ísafirði á föstudaginn langa- og laugardagskvöldinu fyrir páska. Dagskráin er blanda af vestfirsku tónlistarfólki og landsþekktum stjörnum. Margir gestir Aldrei fór ég suður ættu að þekkja nöfnin, þar sem flest þeirra hafa komið fram á fyrri hátíðum. Nokkrar hljómsveitir koma þó fram í fyrsta sinn. Stórstjörnur og nýstirni Írafár þarf ekki að kynna, en hún skartar einni stærstu poppstjörnu sinnar kynslóðar, Birgittu Haukdal. Írafár kom fram á Aldrei árið 2005, rétt eins og hljómsveitin Reykjavík!, sem heldur upp á tuttugu ára Aldrei-afmæli sitt. Reykjavík! er samvinnuverkefni tónlistarmanna frá Ísafirði og Reyðarfirði og kemur nú fram eftir margra ára hlé. Apparat Organ Quartet kemur loks fram á hátíðinni, auk harðkjarnasveitarinnar Múr, sem var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum nýlega. Amor Vincit Omnia kemur einnig fram á hátíðinni í fyrsta sinn. Salóme Katrín og Gosi, sem eru bæði ísfirskar stjörnur, hafa síðastliðin ár ljómað á tónlistarsenunni og koma nú fram í fantaformi með sínu besta fólki. FM Belfast, sem kom fyrst fram á Aldrei árið 2007 og síðast 2023, verður aftur á hátíðinni, og Una Torfa, sem kom einnig fyrst fram árið 2023, er komin langt síðan þá. Loksins, eftir langan tíma, koma þeir JóiPé og Króli aftur á hátíðina eftir að hafa tryllt lýðinn 2019. Tónlistarveisla fyrir vestan Aldrei fór ég suður er áhugamannafélag um tónlistarmenningu á Ísafirði, er ekki hagnaðardrifið félag að neinu leyti, skipað eingöngu sjálfboðaliðum og býður nú eins og alla tíð upp á þessa tónlistarveislu þar sem frítt er inn fyrir gesti. Aldrei fór ég suður gerði samstarfssamning við Ísafjarðarbæ fyrr á árinu, og með stuðningi bæjarins og helstu bakhjörlum hátíðarinnar, sem hafa staðið með henni í mörg ár, er hátíðin orðin að veruleika. Þetta gerir Ísafjarðarbæ að einum af spennandi áfangastöðum á páskunum. Hátíðinni verður útvarpað og sjónvarpað í beinni útsendingu báða dagana á Rás 2 og RÚV 2.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Ísafjarðarbær Aldrei fór ég suður Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira