Frattesi hetja Inter í Bæjara­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Inter fagna.
Leikmenn Inter fagna. EPA-EFE/RONALD WITTEK

Inter lagði Bayern München 2-1 á útivelli í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Gestirnir leiddu í hálfleik þökk sé marki argentíska framherjans Lautaro Martínez á 38. mínútu. Staðan var 0-1 allt fram á 85. mínútu þegar varamaðurinn Thomas Müller jafnaði metin eftir undirbúning Konrad Laimer.

Ellismellurinn Müller yfirgefur Bayern að tímabilinu loknu en það breytir því ekki að Vincent Kompany, þjálfari Bayern, leitar í reynsluna þegar mest á reynir.

Það dugði hins vegar ekki til sigurs þar sem Davide Frattesi tryggði Inter gríðarlega sterkan útisigur með marki á 88. mínútu. Gestirnir frá Mílanó því í góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira