Innherji

Styrking krónu og verð­fall hluta­bréfa tók eignir sjóðanna niður um 400 milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Fjárfestingar lífeyrissjóðanna í erlendum myntum eru nánast einvörðungu í hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, en undirliggjandi eignir þeirra sjóða eru að stórum hluta bandarísk félög. Þrátt fyrir verðhækkanir á mörkuðum að undanförnu þá eru helstu hlutabréfavísitölur vestanhafs – eins og S&P 500 og Nasdaq – niður um fjögur til sex prósent á árinu.
Fjárfestingar lífeyrissjóðanna í erlendum myntum eru nánast einvörðungu í hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, en undirliggjandi eignir þeirra sjóða eru að stórum hluta bandarísk félög. Þrátt fyrir verðhækkanir á mörkuðum að undanförnu þá eru helstu hlutabréfavísitölur vestanhafs – eins og S&P 500 og Nasdaq – niður um fjögur til sex prósent á árinu.

Skörp gengisstyrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadal, ásamt talsverðum verðlækkunum hlutabréfa bæði hér heima og vestanhafs, þýddi að eignir íslensku lífeyrissjóðanna skruppu saman um nærri fjögur hundruð milljarða á aðeins tveimur mánuðum í febrúar og mars. Hlutabréfaverð um allan heim, einkum í Bandaríkjunum þar sem erlendar eignir sjóðanna eru að stórum hluta, féll enn frekar eftir að Bandaríkjaforseti boðaði tollastríð við umheiminn í upphafi apríl en markaðir hafa rétt nokkuð úr kútnum á allra síðustu vikum.


Tengdar fréttir

Markaðurinn tals­vert undir­verðlagður og áfram er út­lit fyrir óvissu og óró­leika

Mikil umskipti hafa orðið á skömmum tíma í verðlagningu á félögum í Kauphöllinni, sem var að nálgast jafnvægi í byrjun ársins, en eftir að „eldi og brennisteini tók að rigna“ eru fyrirtæki á markaði núna að nýju almennt verulega vanmetin, samkvæmt hlutabréfagreinanda. Hann telur líklegt að óvissa og óróleiki muni einkenna hlutabréfamarkaði næstu misserin og við slíkar aðstæður sé „almennt skynsamlegt“ að auka vægi stöðugra arðgreiðslufélaga í eignasafninu.

Krónan styrkist hratt eftir að líf­eyris­sjóðir og spá­kaup­menn drógu sig í hlé

Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, sem er núna í sínu hæsta gildi gagnvart evrunni frá því um haustið 2023, en sú þróun má einkum rekja til þess að gjaldeyriskaup lífeyrissjóða hafa verið hverfandi frá áramótum og framvirkar stöður með krónunni ekki minni um langt árabil. Mikil hækkun á gengi krónunnar að undanförnu kemur á sama tíma og blikur eru á lofti hjá sumum af helstu útflutningsgreinum landsins og útlit fyrir nokkurn viðskiptahalla á komandi árum.

Væri „ekki heppi­legt“ að sjá gengi krónunnar styrkjast mikið meira

Það er „óþægilegt“ að sjá utanríkisviðskiptin og krónuna vera að færast í sitthvora áttina, eins og hefur verið reyndin að undanförnu með gengisstyrkingu og auknum viðskiptahalla, að sögn seðlabankastjóra, og undirstrikar að þetta sé ekki þróun sem Seðlabankinn fagnar. Krónan hefur aðeins gefið eftir síðustu daga í kjölfar þess að Seðlabankinn beitti gjaldeyrisinngripum í fyrsta sinn í meira en eitt ár og Ásgeir Jónsson segir að það væri „ekki heppilegt“ að sjá gengið styrkjast mikið meira en orðið hefur.

Er­lend útlán bankanna mögu­lega „van­metin“ skýring á styrkingu krónunnar

Samtímis mikilli aukningu í útlánum bankanna til fyrirtækja í erlendri mynt á undanförnum mánuðum þá hafa þeir selt niður aðrar gjaldeyriseignir, að því er kemur fram í nýrri greiningu, sem kann að vera „vanmetin þáttur“ í gengisstyrkingu krónunnar frá því á haustmánuðum síðasta árs. Í síðustu viku hóf Seðlabankinn regluleg kaup sín á gjaldeyri, sem hafa það að markmiði að efla forðann, en eftir gengishækkun og fjarveru lífeyrissjóða á markaði eru flestir sérfræðingar sammála um að tímasetning bankans sé góð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×