Syni Tigers mistókst að tryggja sér sæti á Opna bandaríska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2025 19:15 Tiger Woods faðmar hér son sinn Charlie Woods eftir að þeir spiluðu saman á feðgamótinu í desember Getty/Mike Ehrmann Charlie Woods, sonur golfgoðsagnarinnar Tiger Woods, náð ekki að upplifa drauminn sinn og tryggja sér sæti á Opna bandaríska risamótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði.
Þetta var önnur tilraun hans til að komast í gegnum forkeppnina en Charlie er aðeins sextán ára gamall. Woods lék á 75 höggum á Wellington vellinum eða þremur höggum yfir pari. Hann var sjö höggum yfir lágmarkinu til að komast í næstu umferð sem voru 68 högg. Woods er samt að bæta sig frá því í fyrra þegar hann lék á 81 höggi á sama móti eða níu höggum yfir pari. Honum tókst þá að komast á Opna bandaríska unglingamótið í fyrra en var átján höggum frá því að ná niðurskurðinum. Arth Sinha náði bestum árangri á mótinu en hann lék á 66 högum eða einu höggi betur en Matthew Marigliano. Tyler Stachkunas, Carson Klawonn og Michael Gligic tryggðu sér líka allir farseðil á 36 holu lokaúrtökumótið sem verður spilað á einum degi. Opna bandaríska risamótið fer fram frá 12. til 15. júní á Oakmont golfvellinum í Pennsylvaníu fylki. Charlie Woods will have to wait another year for a chance at the U.S. Open.— Golf Digest (@GolfDigest) May 9, 2025
Golf Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti KA - FH | Barist um sæti fyrir úrslitakeppnina Handbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Fleiri fréttir Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira