Viðskipti innlent

Bein út­sending: Kynningar­fundur um hluta­fjárút­boð í Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka og mun taka til máls á fundinum sem hefst klukkan 16:30.
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka og mun taka til máls á fundinum sem hefst klukkan 16:30. Vísir/Vilhelm

Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Íslandsbanki hafa boðað til opins kynningarfundar um yfirstandandi hlutafjárútboð í Íslandsbanka. Fundurinn hefst klukkan 16:30 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að á fundinum verði farið yfir fyrirkomulag útboðsins.

Edda Hermannsdóttir mun opna fundinn, og þá munu Narfi Snorrason, for­stöðumaður fyr­ir­tækjaráðgjaf­ar hjá Kviku banka, og Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka, einnig taka til máls.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Útboðið vegna sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka hófst klukkan hálfníu í gærmorgun og er gert ráð fyrir að því ljúki klukkan 17 ár morgun. Einstaklingar með íslenska kennitölu hafa forgang umfram aðra í útboðinu og njóta lægsta verðsins.

Þrjár tilboðsbækur standa kaupendum til boða og eru þær ólíkar hvað varðar forgang, stærð og úthlutun. Eins og þegar hefur komið fram hafa þegar verið mótteknar pantanir umfram grunnmagn, það er sem nær til tuttugu prósent útistandandi hlutafjár. Almenningur nýtur forgangs gagnvart lögaðilum og lögaðilar njóta forgangs gagnvart fjárfestum.


Tengdar fréttir

Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist

Hörður Ægisson, ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja, segir útboð vegna sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka fara vel af stað. Áskriftir hafa þegar borist í 20 prósent. Útboðið stendur yfir fram til loka fimmtudags.

Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna

Bankastjóri Íslandsbanka segir jákvætt að almenningur njóti forgangs við sölu á hluti ríkisins í Íslandsbanka, um sé að ræða góða fjárfestingu. Útboð vegna sölunnar hófst í dag en fjármálaráðherra segir núverandi aðstæður á mörkuðum góðar fyrir sölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×