Glæsileg í Cannes í sérsaumaðri íslenskri hönnun Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 20. maí 2025 15:12 Saga Garðars var stórglæsileg í íslenskri hönnun á Cannes hátíðinni. Ammar Abd Rabbo Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir skein sannarlega skært í íslenskri hönnun þegar hún gekk rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún naut sín í sólinni á frönsku rívíerunni ásamt fríðu föruneyti úr kvikmyndinni Ástin sem eftir er.
Saga var mætt á hátíðina til að fylgja eftir kvikmyndinni sem heitir á ensku The Love That Remains og fer hún með stórt hlutverk þar. Saga stórglæsileg í förðun.Snorri Helgason Hlynur Pálmason er leikstjóri og meðal annarra leikara eru Ingvar E. Sigurðsson, Sverrir Guðnason, Anders Mossling, Ída Mekkin Hlynsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Anton Máni Svansson, Anders Mossling, Saga Garðarsdóttir, Grímur Hlynsson, Hlynur Pálmason, Þorgils Hlynsson, Sverrir Guðnason, Ida Mekkin Hlynsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson og Katrin Pors fylgdu kvikmyndinni Ástin Sem Eftir Er út til Cannes. Tristan Fewings/Getty Images Saga birti glæsilega mynd af sér á Instagram í gulum kjól sem var sérsaumaður á hana af fatahönnuðinum Sigríði Ágústu. Skórnir eru frá íslenska skómerkinu Kalda og Saga þakkar líkamsræktastöðinni Afreki fyrir byssurnar, það er að segja tónaða upphandleggina. „Ég verð að nýta tækifærið og segja megi Katrín Alda eigandi Kalda lengi lifa. Hún gerir svo glæsilega skó og gerir mér kleift að ganga hælum því hún gerir hælaskó í stærðum 41 og 42. Án hennar hefði ég bara verið í einhverjum klossum,“ segir Saga glöð í bragði í samtali við blaðamann. Kjóllinn frá Sigríði Ágústu, skórnir frá Kalda og byssurnar frá Afrek Fitness.STILL VIVID Fatahönnuðurinn Sigríður Ágústa hefur komið víða við og þar á meðal hannað fyrir íslensku stjörnurnar Bríeti og GDRN. Blaðamaður náði tali af Sigríði og segir hún að það hafi verið ótrúlega gaman að hanna fyrir Sögu. „Þetta var svo skemmtilegt ferli. Ég er svo þakklát fyrir traustið sem Saga sýndi mér Kjóllinn endurspeglar bæði karakter Sögu en vorum líka með kvikmyndina í huga og verk Hlyns, hugljúf og falleg.“ Það gekk á ýmsu á dreglinum og steig Sverrir óvart aðeins á kjól Sögu í tröppunum.STILL VIVID Þetta er í fyrsta sinn sem hún hannar fyrir svona hátíð og það hlýtur að vera magnað augnablik að sjá hönnun sína á svo stórum vettvangi. „Það sem mér fannst skipta mestu var að sjá að Sögu leið vel og hún var svo geislandi. Þá var markmiðinu náð, svo gaf það alveg smá auka kitl í magann að sjá hönnunina á svona stóru venue-i, ætla ekki að ljúga því,“ svarar hún kímin. Hér má sjá þennan einstaka kjól betur.Ammar Abd Rabbo Hér má kynna sér betur hönnun Sigríðar Ágústu.
Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Kvikmyndahátíðin í Cannes Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira