Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Mania 6. júní 2025 08:46 Mania The ABBA Tribute sýningin hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Vinsælasta ABBA sýning í heimi Mania: The ABBA Tribute er á leið til Íslands. Sýningin verður haldin 27. september í Eldborg í Hörpu.
Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute. Uppselt var á tónleikana í Shaftesbury leikhúsinu í West End 2021 og á alls 80 sýningum um öll Bandaríkin 2022 og 2023. Öll frægustu lög ABBA munu hljóma í Hörpu. Mania: The ABBA Tribute skartar hæfileikaríkum flytjendum og tónlistarfólki sem endurskapa síðustu tónleika hinnar goðsagnarkenndu sænsku hljómsveitar ABBA í lifandi flutningi með flottri sviðssetningu, búningum og lýsingu. Á sýningunni verða öll frægustu lög ABBA eins og Mamma Mia, Voulez Vous, Dancing Queen, The Winner Takes It All, SOS, Fernando, Does Your Mother Know, Gimme! Gimme! Gimme!, Waterloo og fleiri. ,,Tónlist ABBA er ómótstæðileg, glaðleg og tímalaus. Tónleikarnir eru fullkomnir fyrir alla ABBA aðdáendur sem og nýja kynslóð sem hefur aldrei séð ABBA. Þetta er hið fullkomna tónlistarkvöld," segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment sem flytur sýninguna til landsins. Það verður mikið um að vera í Hörpu þessa helgi í lok september því kvöldið áður en Mania: The ABBA Tribute stígur á svið í Eldborg í Hörpu mun ein vinsælasta kántrý hljómsveit í Bretlandi í dag Dominic Halpin and the Hurricanes stíga á svið á sama stað og halda tónleikana A Country Night in Nashville.Tónleikarnir koma beint frá The Royal Albert Hall í London og metsölu tónleikaferðalagi í Bretlandi.Kántrýsveitin er einnig á vegum Jamboree Entertainment en fyrirtækið er leiðandi í bresku tónleikahaldi á Íslandi. Tónlistarfólkið er spennt að koma til Íslands og lofar dúndurstemmningu í Hörpu. ,,Við erum mjög ánægð og stolt að hafa komið nýverið með sýningar eins og Emilio Santoro sem Elvis, og Xenna sem Taylor Swift, í jafn glæsilega tónlistarhöll og Harpa sannarlega er. Mania: The ABBA Tribute og A Country Night in Nashville eru góð dæmi um frábærar hljómsveitir og listamenn sem munu gleðja áhorfendur á Íslandi eins og annars staðar þar sem þau hafa komið fram," segir James Cundall. Klippa: Mania: The ABBA tribute tónleikar í Hörpu
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira