Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Rakel Sveinsdóttir skrifar 6. júní 2025 07:16 Rokkstjarnan, sá sítengdi, sá góði og sá kappsami eru fjórar týpur af yfirmönnum sem elska vinnuna sína svo mikið að þeir eru alltaf sjálfir að drukkna í vinnu. Góð ráð fylgja því rannsóknir hafa margsannað að meiri árangur næst ef stjórnendur einbeita sér að því að stjórna frekar en að vera á kafi sjálfir í verkefnum. Vísir/Getty Það er oft sagt að á Íslandi séu stjórnendur eingöngu í stjórnendahlutverkinu í hjáverkum. Svona til viðbótar við að gera allt annað; Vinna í sínum verkefnum og afkasta. Vera jafnvel bestur í liðinu.
Harvard Business Review (HBR) hefur sérstaklega bent á bók sem fjallar um þetta og ber það skemmtilega heiti: Leaders Shouldn’t Try to Do It All. Í umfjöllun HBR segir að bókin fjalli um þá ótrúlegu algengu gryfju stjórnenda að vera hreinlega að drukkna í vinnu sjálfir; Frekar en að velja vel hvaða verkefni þeir eiga að fókusera á og sinna ekki öðru. Greinahöfundur Forbes hefur líka tekið saman skemmtilegar lýsingar á þeim fjórum týpum sem sagðar eru einkenna stjórnendur sem eru einfaldlega að drukkna í vinnu. Það sem þessar týpur eiga þó allar sammerkt er að þeir ELSKA vinnuna sína. Og eru rosalega góðir í því sem þeir gera. Spurningin er hins vegar: Ef yfirmaðurinn er sjálfur að drukkna í vinnu, hvenær hefur hann þá tíma til að styðja við starfsmenn sína? Sem mögulega líður eins og er alltaf undir sömu pressunni; Að vera að drukkna í vinnu. Við skulum sjá hvaða týpur við þekkjum úr okkar nærumhverfi: 1. Rokkstjarnan Þessi yfirmaður hefur eiginlega alltaf átt sviðsljósið í vinnunni; Svo öflugur er viðkomandi! Og þessi yfirmaður er alltaf að. Svo duglegur og afkastamikill er þessi yfirmaður að oft er vinnuframlagið hans tekið sem sjálfsagður hlutur; Það gera einfaldlega allir ráð fyrir að eitthvað svakalegt komi alltaf frá þessum; Alltaf og svo stöðugt að þeir gera langtum meira en þeir þyrftu að gera. 2. Sá sítengdi Þetta er yfirmaðurinn sem byrjar daginn á því að lesa tölvupósta, tékkar á tölvupóstinum síðan aftur þegar verið er að borða morgunmatinn, svarar um hæl, jafnvel þegar verið er að horfa á sjónvarpið á kvöldin eða hlaupa á hlaupabrettinu í ræktinni. Það er einfaldlega hægt að treysta því að þessi yfirmaður sé alltaf til staðar; Svari öllu og bregðist alltaf fljótt við. Alla daga, allan ársins hring, alls staðar. Og því meira sem tæknin þróast, því tengdari verður þessi yfirmaður. Því samskiptaleiðirnar eru einfaldlega svo margar og fjölbreyttar. 3. Sá góði Hérna er síðan yfirmaðurinn sem er svo góður í sér að hann segir alltaf Já. Á einfaldlega erfitt með að segja Nei. Að hluta til vegna þess að undirliggjandi er ákveðinn ótti um að verða þá ónauðsynlegur eða í það minnsta ekki eins mikilvægur. Þessi yfirmaður er líka alltaf til staðar; Enda að vinna mjög mikið, segjandi öll þessi Já… 4. Sá kappsami Loks er það sá kappsami. Sem er einfaldlega drifinn áfram af ákveðinni ástríðu; Metnaðarfullur og kröfuharður á sjálfan sig. Þetta er yfirmaðurinn sem velur sér sérstaklega verkefni sem hann hefur mikinn áhuga á. En það er ekki nóg; Því svo mikið elskar þessi týpa vinnuna að hann nýtir nánast alla sína orku og krafta í þágu hennar. Góðu ráðin fyrir yfirmennina Það er ekkert ólíklegt að margir hafi kinkað kolli við lesturinn. Enda þekkja flestir yfirmenn, eða hafa þekkt yfirmenn, sem elska vinnuna sína svo mikið að þeir eru einfaldlega alltaf að. Öll leiðtogafræði tala hins vegar fyrir því að meira ávinnist af því að leiðtogi leiði; Að stjórnandi stjórni. Að yfirmaðurinn sé nokkurs konar fyrirliði hópsins. Hérna koma því nokkur ráð fyrir fyrrgreinda yfirmenn. En þau eiga það sameiginlegt að breyta ákveðnu hugarfari. Rokkstjarnan – breytt hugarfar: Þú veist fullvel að þú getur svo sannarlega unnið öll þessi verkefni sjálfur. Og ert góður í þeim. En þýðir þetta þá að þú getir leiðbeint og þjálfað aðra í að verða eins góðir? Skoðaðu vel í hvað athyglin þín og orka er að fara. Sá sítengdi – breytt hugarfar: Eitt er að geta gert allt en annað er að eiga að gera allt. Þessu hugarfari þarft þú að breyta og því fylgir að finna hinn gullna meðalveg í því hvenær þú ert að skoða vinnutengd mál og hvenær ekki. Mundu að þú átt að stjórna tækninni sem þú notar, ekki tæknin þér. Góð æfing gæti til dæmis falist í því að leggja símann frá þér um tíma og telja hversu oft þig langar til að grípa í hann til að sjá hvað er í gangi. Fyrir þessa aðila er gott að skipuleggja tíma í dagskránni til að vinna í verkefnum eða taka fundi þar sem þú skoðar ekki tölvupósta eða önnur skilaboð á meðan, svarar ekki símtölum eða öðrum erindum á meðan og svo framvegis. Sá góði – breytt hugarfar: Góð leið til að æfa sig í að segja Nei er að byrja smátt; Veldu þér eitthvað eitt sem þú ætlar ekki að gera og munt segja Nei við. Útskýrðu ákvörðunina þína því þegar fólk áttar sig á því að þú ert fyrst og fremst að segja Nei til að gera þitt besta, skilur fólk það. Mælt er með því að þessi týpa skoði það líka í einkalífinu að segja oftar Nei við fólk. Sá kappsami – breytt hugarfar: Svona drifkraftur og ástríða getur komið mörgu til leiða. En er aldrei góð leið til lengdar. Að keyra sig svona áfram eykur einfaldlega líkur á að einn daginn brennir þú út. Sem þú vilt ekki. Þess vegna er mikilvægt að þú lærir að setja þér og áhuganum á vinnunni mörk: Að úthluta þér tíma í einkalífinu og utan vinnu sem einfaldlega tryggir að þú kúplir þig algjörlega frá þannig að með tímanum náir þú að vera aðeins í vinnunni þann tíma sem þú átt að vera í vinnunni. En þess utan sértu það ekki (ekki heldur í huganum).
Tengdar fréttir Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01 Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að vinna á draumavinnustaðnum er geggjuð upplifun. Að hlakka til hvers dags til að fara að vinna og upplifa daginn sem ánægjuna eina: Svo gaman að vinna, svo frábær vinnustaður. 7. mars 2025 07:01 Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03 Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01 Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01 Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Lausnamiðuð ferilskrá og að þora „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á Stjórnun þarf ekki bara að breytast heldur „gerbreytast” „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Að segja upp án þess að brenna brýr Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best „Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Sjá meira
Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01
Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að vinna á draumavinnustaðnum er geggjuð upplifun. Að hlakka til hvers dags til að fara að vinna og upplifa daginn sem ánægjuna eina: Svo gaman að vinna, svo frábær vinnustaður. 7. mars 2025 07:01
Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03
Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01
Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01