Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 10. júlí 2025 16:01 Kona og karl á sextugsaldri eru grunuð um aðild að málinu. Getty Nítján ára gömul kona fannst læst inni í kistu í Thuringenríki í Þýskalandi tveimur dögum eftir að lögregla hóf leit að henni. Konan komst lífs af en tveir eru í haldi vegna málsins.
Í umfjöllun Spiegel kemur fram að maður og kona á sextugsaldri hafi verið handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn málsins. Þau eru grunuð um hættulega líkamsárás og gíslatöku. Ekki liggur fyrir hve lengi konan þurfti að hírast inni í kistunni. Á sunnudag hóf lögregla leit að konunni þar sem ekki hafði spurst til hennar um hríð. Þar sem hún þyrfti að taka inn lyf reglulega hafi leit að henni hafist fyrr en ella. Við leit á lóð nærri Vogelsbergfjöllum tveimur dögum síðar hafi lögregla heyrt hróp og köll. Í framhaldinu hafi konan fundist í trékassa inni í hlöðu á lóðinni og verið flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Ekki fengust upplýsingar frá saksóknara um hve alvarleg meiðsl konunnar voru. Þá liggur ekki fyrir hvort tengsl hafi verið milli konunnar og hinna grunuðu í málinu.
Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira