Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Saksóknaraembættið í Berlín hefur gefið út ákæru á hendur 68 ára Þjóðverja sem grunaður er um að hafa byrlað fjölda kvenna svefnlyf í bland við áfengi, nauðgað þeim á meðan þær voru meðvitundarlausar og tekið verknaðinn upp á myndband. Erlent 14.7.2026 14:01
Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Gluggi flugvélar Ryanair, sem flaug frá Þessalóníku í Grikklandi til München í Þýskalandi síðastliðinn föstudag, brotnaði í háloftunum þegar vélarhluti brotnaði af og skaust í vélina. Maður, sem sat við umræddan glugga, sogaðist hálfur úr vélinni, en var sem betur fer spenntur í belti. Erlent 14.7.2026 08:54
Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Vesturlönd hafa gengið í gegnum pólitíska umbrotatíð frá aldamótum. Samspil efnahagslegra og samfélagslegra áfalla hefur skapað frjóan jarðveg fyrir þjóðernispopúlisma þar sem samsæriskenningar á borð við um „útskiptin miklu“ hafa færst úr afkimum internetsins og inn í hjarta stjórnmálanna. Lífið 6.7.2026 12:00
Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent 6.7.2026 06:47
Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn. Erlent 27. júní 2026 10:50
Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum. Erlent 25. júní 2026 17:35
Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Þýska lögreglan óttast að til óeirða geti komið við þing Valkosts fyrir Þýskalands um aðra helgi. Hún telur að allt að fimmtíu þúsund mótmælendur geti drifið að þinginu, þar á meðal um 2.500 herskáa öfgavinstrimenn. Erlent 25. júní 2026 14:14
Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakklandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem áttu að starfa saman að því að framleiða nýja orrustuþotu muni ekki ná að komast að samkomulagi um verkefnið. Erlent 9. júní 2026 06:55
Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. Erlent 1. júní 2026 10:07
Dúx í MH og talar fjögur tungumál Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara er dúx Menntaskólans við Hamrahlíð í ár. Alls voru á föstudag brautskráðir 127 nemendur úr skólanum. Sóley var á náttúrufræðibraut og útskrifaðist sem dúx með 9,88 í meðaleinkunn. Innlent 31. maí 2026 14:51
„Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. Lífið 31. maí 2026 09:03
Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Öll flugumferð um alþjóðaflugvöllinn í München var stöðvuð í um klukkustund í morgun. Um klukkan níu að staðartíma tilkynntu flugmenn tveggja véla að þeir hefðu mögulega séð dróna á flugi. Flugmennirnir voru þá enn staddir á jörðu niðri. Erlent 30. maí 2026 10:14
Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum. Erlent 22. maí 2026 14:38
Sátu um tóman banka í sex tíma Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir. Erlent 8. maí 2026 14:35
Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun. Erlent 8. maí 2026 11:11
Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Minnst einn lést þegar ökumaður keyrði inn í mannfjölda í borginni Leipzig í Þýskalandi síðdegis í dag. Fleiri eru særðir en lögregla segir að ökumaðurinn hafi verið handtekinn og almenningi stafi engin frekari hætta af honum. Erlent 4. maí 2026 16:31
Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Trump, forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að fækka í her Bandaríkjamanna sem staðsettur er í Evrópu. Fyrstu fimm þúsund hermennirnir sem kvaddir eru heim eru staðsettir í Þýskalandi, en fleiri munu fylgja á eftir, þ.á.m. frá Ítalíu og Spáni. Skoðun 4. maí 2026 07:00
Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn. Innlent 3. maí 2026 13:15
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. Erlent 3. maí 2026 08:27
Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Talskona NATO segir sambandið nú vinna að því í samvinnu við Bandaríkin að „skilja smáatriðin“ í ákvörðun Bandaríkjanna um að afturkalla þúsundir hermanna frá Þýskalandi. Erlent 2. maí 2026 14:55
Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran. Erlent 1. maí 2026 22:52
Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi. Erlent 30. apríl 2026 06:35
Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína. Erlent 29. apríl 2026 13:45
Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi. Erlent 28. apríl 2026 07:12
Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. Erlent 8. apríl 2026 15:37