Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2025 13:56 Jeremie Frimpong á við meiðsli að stríða. Getty/Robbie Jay Barratt Hollenski bakvörðurinn Jeremie Frimpong náði aðeins að spila einn leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta áður en hann meiddist. Hann missir af næstu leikjum liðsins.
Frimpong var í byrjunarliði Liverpool í 4-2 sigrinum gegn Bournemouth síðasta föstudag, eftir að hafa sömuleiðis spilað gegn Crystal Palace í leiknum um Samfélagsskjöldinn og skorað mark. Hann mun hins vegar ekki spila meira með Liverpool fyrr en eftir landsleikjahléið í september, eftir að hafa tognað í læri í leiknum við Bournemouth. Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti þetta í dag og var ánægður með ráðleggingar sjúkrateymisins um að taka Frimpong af velli á 59. mínútu. 🚨⚠️ Jeremie Frimpong will be out until the end of the international break, confirms Arne Slot.He won’t be available due to a hamstring injury. pic.twitter.com/Rnnxjx4z0g— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 21, 2025 Frimpong missir af ansi mikilvægum leikjum því Liverpool mætir Newcastle á mánudagskvöld og á svo sannkallaðan stórleik við Arsenal sunnudaginn eftir það. „Sjúkrateymið hafði hárrétt fyrir sér þegar það sagði mér að taka Jeremie af velli því hann verður frá keppni fram yfir landsleikjahléið. Ég held ég hafi verið gagnrýndur fyrir að taka hann af velli en sjúkrateymið taldi hann glíma við vandamál í lærinu. Góð ákvörðun að taka hann af velli því annars hefði hann mögulega verið lengur frá keppni. Við búumst við honum aftur eftir landsleikjahléið,“ sagði Slot. Conor Bradley hefur einnig verið meiddur en Slot sagði hann hafa snúið aftur til æfinga með liðinu í dag. Joe Gomez er einnig kostur í stöðu hægri bakvarðar.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira