Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2025 08:02 Eberechi Eze fagnar marki með Crystal Palace en hann hefur farið á kostum með liðinu síðustu árin. EPA/DANIEL HAMBURY Ein athyglisverðasta endurkoman í langan tíma í ensku úrvalsdeildinni er sú að Eberechi Eze sé aftur orðinn leikmaður Arsenal.
Aftur leikmaður Arsenal segja eflaust einhverjir hissa. Jú Eze var einu sinni leikmaður hjá unglingaliði Arsenal en félagið hafði ekki trú á honum þá. Eze hefur sagt frá því að Arsenal lét hann fara þegar hann var þrettán ára gamall. Afskrifaður af félaginu sem honum dreymdi um að spila fyrir. View this post on Instagram A post shared by ESPN UK (@espnuk) Hann sagðist hafa grátið í viku á eftir, algjörlega niðurbrotinn. Það tók líka tíma fyrir kappann að vinna sig upp en fótboltadraumurinn dó aldrei. Hann reyndi líka fyrir sér hjá unglingaliðum Fulham, Reading og Millwall en ekkert gekk að fá atvinnumannasamning. Tækifærið kom síðan hjá Queens Park Rangers og þar fékk hann sitt fyrstu tækifæri í ensku b-deildinni. Crystal Palace keypti Eze frá QPR í ágúst 2020 og borgaði sautján milljónir punda fyrir hann. Þar fékk hann tækifæri til að spila í ensku úrvalsdeildinni og þar varð hann að einum skeinuhættasta leikmanni deildarinnar. Arsenal er nú að borga meira en sextíu milljónir punda fyrir hann en með bónusgreiðslum gæti upphæðin endaði í 67,5 milljónum punda eða meira en ellefu milljörðum íslenskra króna. Arsenal kom inn og stal Eze af Tottenham á síðustu metrunum. Miðað við fyrri sögu þá er ekkert skrýtið að Eze hafi valið Arsenal. Eftir stóru vonbrigðin fyrir fjórtán árum þá hefur honum tekist að komast þangað sem hann dreymdi um að vera þegar fótboltaáhuginn fæddist. View this post on Instagram A post shared by TNT Sports Football (@tntsportsfootball)
Enski boltinn Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira