Man. City seldi markvörð og lánaði varnarmann Sindri Sverrisson skrifar 2. september 2025 08:55 Það lá lengi í loftinu að Ederson færi frá Manchester City í sumar. Getty/Catherine Ivill Manchester City hefur staðfest brotthvarf brasilíska markvarðarins Ederson og svissneska varnarmannsins Manuel Akanji, við lokun félagaskiptagluggans.
Glugginn lokaðist í gær en enn er verið að staðfesta félagaskipti og hafa City-menn nú greint frá því að Ederson hafi verið seldur til tyrkneska félagsins Fenerbahce. Hinn 32 ára gamli Ederson var í átta ár hjá City og vann til að mynda sex Englandsmeistaratitla sem og Meistaradeild Evrópu. Fenerbahce greiðir fyrir hann 12,1 milljón punda. City var búið að kaupa James Trafford frá Burnley í sumar og semja við PSG um kaup á Gianluigi Donnarumma. Akanji er svo farinn til Inter á Ítalíu að láni út leiktíðina. Þessi þrítugi varnarmaður hefur verið leikmaður City frá árinu 2022, þegar hann kom frá Dortmund, en fallið aftar í goggunarröðinni og ekkert spilað á þessari leiktíð. Manuel Akanji hefur sennilega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester City.EPA/DAVID CLIFF Crystal Palace, AC Milan og Galatasaray höfðu einnig áhuga á Akanji en hann valdi Inter og vildi spila í Meistaradeild Evrópu. Lánssamningurinn er með klásúlu um að Inter kaupi Akanji fyrir 13 milljónir punda verði Inter ítalskur meistari.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira