Ragnhildur tekur við Kveik Agnar Már Másson skrifar 2. október 2025 18:32 Ragnhildur Þrastardótir hefur verið blaðamaður á Heimildinni í rúmlega tvö ár en nú er hún á leiðinni í Efstaleiti. Irja Gröndal Ragnhildur Þrastardóttir, fréttastjóri á Heimildinni, hefur verið ráðin ritstjóri Kveiks og mun hefja störf um miðjan október. Hún segist þó munu sakna Heimildarinnar. „
Þetta er spennandi,“ segir Ragnhildur, sem staðfestir ráðninguna í samtali við Vísi. Spurð hvort búast megi við því að fréttaskýringaþátturinn taki nýja stefnu undir hennar stjórn svarar hún að of snemmt sé segja til um það. Hún segir ráðninguna ekki koma sér sérstaklega á óvart, heldur telur hún sig smellpassa í starfið. Ellefu sóttu um Ingólfur Bjarni Sigfússon, ritstjóri Kveiks, greindi frá því fyrir mánuði síðan að hann hefði sagt starfi sínu lausu sem ritstjóri fréttaskýringarþáttarins Kveiks á RÚV með vísan til þess að hann væri einfaldlega orðinn þreyttur. Ellefu sóttu um starf ritstjóra þáttarins en fráfarandi ritstjóri í framhaldi af starfslokum Ingólfs. Auk Ragnhildar sóttu um starfið þau Arman Ahmadizad, Cristian Fernandez Vivanco, Elvar Gunnarsson, Freyr Hákonarson, Ingi Freyr Vilhjálmsson, Serhiii Ostrovskyi, Tryggvi Aðalbjörnsson. Ragnhildur Þrastardóttir hefur verið blaðamaður á Heimildinni frá 2023 en fyrir það starfaði hún á Morgunblaðinu. Hefur tröllatrú á Heimildinni Ragnhildur kveðst munu sakna Heimildarinnar. „Þetta er í raun eins og fjölskylda,“ segir hún um miðilinn, sem var stofnaður með sameiningu Kjarnans og Stundarinnar. Fækkað hefur allverulega í ritstjórn Heimildarinnar frá á síðustu misserum og hefur útgáfudögum blaðsins fækkað um helming. Í raun eru allir þeir blaðamenn sem komu af Kjarnanum farnir af miðlinum, þar á meðal Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson. Ertu að yfirgefa Heimildina vegna þess að þú óttast að lífdagar hennar séu taldir? „Það er alls ekki staðan,“ svarar fréttakonan. Hún viðurkennir þó að miðillinn sé vissulega breyttur frá því sem hann var í upphafi. Miðill eins og Heimildin sé aftur á móti mikilvægur. „Ég hef persónulega fulla trú á Heimildinni.“
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tímamót Vistaskipti Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira