Reikna með 1,5 milljarði króna í sjóböðin í Önundarfirði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. október 2025 10:55 Afstöðumynd af gufu- og sjóböðunum í Holtsfjöru. Veitingastaður lengst til vinstri, baðhús í miðju, Kaupfélagshjallurinn, samfélagssána til hægri og viðarsána á bryggjuenda. Gamla flugbrautin er í hundrað metra fjarlægð og verður nýtt sem bílastæði. Sen & Son Áform eru uppi um að reisa nýja aðstöðu til sjó- og gufubaða í landi Þórustaða í Holtsfjöru í Önundarfirði undir heitinu Hvítisandur. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður 1,5 milljarðar króna. Verkefnið er í höndum Hvítasands ehf. sem hyggst senda deiliskipulagstillögu til Ísafjarðarbæjar í nóvember. Ef samþykki fæst gætu framkvæmdir hafist næsta sumar, eftir varptíma æðarfugls.
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Hvítasands ehf., segir í samtali við BB.is sem greinir frá, að markmiðið sé að skapa sjálfbæra upplifun í einstöku náttúruumhverfi. „Staðurinn er einstök náttúruperla sem kallar á hógværa, sjálfbæra og vandaða nálgun hvað framkvæmdir og rekstur varðar. Böðin verða einn megin segull í ferðamennsku á Vestfjörðum og munu sérstaklega skapa ný sóknarfæri í vetrarferðamennsku auk þess að þjóna heimafólki á svæðinu. Þau byggja á sjálfbærri nýtingu á varmaorku úr sjó, einstakri náttúrufegurð og þessari dásamlegu gullnu skeljasandsfjöru sem nú þegar er miðstöð sjóbaða á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir hann. Fuglaskoðunarhús og flugbraut verður bílastæði Byggingin verður felld inn í melgresishól við fjöruna, og gamla flugbrautin í Holti nýtt sem bílastæði. Þaðan munu gestir ganga 100 metra stíg að baðhúsinu. Á svæðinu verður einnig fuglaskoðunarhús þar sem fylgjast má með æðarvarpi og fuglalífi. Í húsinu verður móttaka, veitingastaður fyrir 50 gesti, tveir barir, starfsmannaaðstaða og tólf einkabúningsklefar auk hefðbundinna klefa. Aðstaðan mun rúma 250 manns yfir sumarið, með um 30 starfsmönnum í vinnu. Að vetri til verður svæðið rekið í minna mæli á tveimur til fjórum starfsmönnum, með fjörutíu manna potti, gufuböðum og bar sem opinn verður síðdegis og á kvöldin. Reiknað er með nítján ársverkum hjá fyrirtækinu. Sjó- og gufuböð með vestfirskum blæ Sjóbaðslaug, upphituð með varmadælu úr sjó, verður 250 fermetrar að stærð, lítið eitt minni en Skógarböðin á Akureyri sem voru opnuð í maí árið 2022. Gert er ráð fyrir fimm mismunandi sánum; gufugusu með gusumeistara, saltgufu með sjávarsalti, ilmgufu með vestfirskum plöntum, viðburðasánu fyrir allt að sextíu manns og hefðbundna finnska viðarsánu á bryggju úti í firðinum. Hönnunin tekur mið af harðfiskhjöllum á svæðinu, meðal annars Kaupfélagshjallinum á Flateyri. Hvítisandur verður staðsettur við nýjan heilsárshringveg um Vestfirði sem opnar 2027 og á leiðinni milli Ísafjarðar og Dynjanda, einnar vinsælustu náttúruperlu Vestfjarða. Hvítisandur ehf. stendur að framkvæmdinni. Félagið er í eigu Blævængs ehf., Björns Björnssonar og Jónínu Eyju Þórðardóttur á Þórustöðum, Óttars Guðjónssonar og Ragnars Björgvinssonar. Blævængur er í eigu Áslaugar Guðrúnardóttur og Runólfs Ágústssonar. Um væri að ræða fyrstu sjóböðin eða lón á Vestfjörðum en þau má finna í flestum landshlutum. Nýlega var opnað baðlón í Laugarási í Biskupstungum til viðbótar við Bláa lónið, Sky Lagoon, Krauma í Borgarfirði, Jarðböðin á Mývatni, Skógarböðin á Akureyri, Vök á Egilsstöðum og þá eru fjallaböð í Þjórsárdal á lokastigum hönnunar.
Ísafjarðarbær Ferðaþjónusta Sundlaugar og baðlón Skipulag Tengdar fréttir Hafa samið um sjóböð í Önundarfirði Samingur hefur verið undirritaður um land undir „umhverfisvæn sjóböð“ á Hvítasandi í landi Þórustaða innst í Önundarfirði. Böðin munu nýta varmaorku úr sjó til að hita laug, potta og sturtur og verða staðsett í gamalli sandnámu við hvíta skeljasandsströnd nálægt Holtsbryggju. 8. ágúst 2023 13:12 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Hafa samið um sjóböð í Önundarfirði Samingur hefur verið undirritaður um land undir „umhverfisvæn sjóböð“ á Hvítasandi í landi Þórustaða innst í Önundarfirði. Böðin munu nýta varmaorku úr sjó til að hita laug, potta og sturtur og verða staðsett í gamalli sandnámu við hvíta skeljasandsströnd nálægt Holtsbryggju. 8. ágúst 2023 13:12