Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2025 11:02 Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg ætla sér að vinna síðasta titilinn sem vinnst undir merkjum Daikin-deildarinnar. Getty/Martin Rose/ Þýska bundesligan í handbolta þarf að leita sér að nýjum aðalstyrktaraðila því núverandi samstarfsaðili, Daikin, hættir eftir aðeins tveggja ára samstarf.
Þýska íþróttablaðið Kicker fjallar um stöðuna á styrktaraðila bestu handboltadeildar heims og birti með mynd af íslenska þjálfaranum Guðjóni Val Sigurðssyni mjög hissa. Þessi þróun mála kemur líka mörgum á óvart. Nýverandi samningi var lýst sem þeim stærsta í þýska handboltanum þegar stjórnendur þýsku deildarinnar kynntu Daikin sem nýjan nafngefanda sumarið 2024. „Kaup Daikin á nafnaréttinum eru tímamót fyrir þýsku handknattleiksdeildina, og víðtæk skuldbinding framtíðar aðalstyrktaraðila okkar er einnig fjárhagslega mjög aðlaðandi og einstök í sögu þýsks handbolta,“ sagði Uwe Schwenker, forseti HBL, glaður í bragði á sínum tíma. Fyrirtækið er eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði hitunar, loftræstingar, loftkælingar, lofthreinsunar og kælingar, með japanskt milljarðafyrirtæki að baki sér og virtist ætla að koma öflugt inn. Fréttin hjá Kicker.Kicker.de „Við viljum með Daikin efla alla handboltaíþróttina og þróa hana áfram á sjálfbæran hátt,“ sagði Martin Krutz, framkvæmdastjóri Daikin Airconditioning Germany, í samtali við Kicker eftir undirritun samningsins. Fyrirtækið er sagt hafa greitt yfir fimm milljónir evra árlega fyrir þessa skuldbindingu eða 727 milljónir króna. Það er ekki aðeins mun meira en fyrri nafngefandi, Liqui Moly, greiddi, heldur einnig mjög mikill peningur í handboltaheiminum almennt. Þrátt fyrir stór loforð um framtíðina verður nú skyndilegur endir á samstarfinu. Samkvæmt einkaheimildum kicker mun Daikin hætta sem nafngefandi HBL í lok yfirstandandi tímabils 2025/26. Þetta er mögulegt vegna ákvæðis í samningnum sem Daikin nýtir sér eftir tvö ár, í stað þess að nýta sér valrétt um þrjú ár til viðbótar. Daikin staðfesti yfirvofandi endalok samstarfsins sem nafngefandi aðspurður, án þess þó að gefa nánari ástæður fyrir ákvörðuninni.
Þýski handboltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira