Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. nóvember 2025 07:00 Fyrirhuguð staðsetning hótels og veitingaþjónustu á skógarsvæði, horft í norðvesturátt. Í bakgrunni má sjá tungu Hoffelsjökuls. Efla verkfræðistofa Nýr baðstaður og hótel Bláa lónsins við Hoffellsslón og Hoffellsjökul á Suðausturlandi á að vera bygging á heimsmælikvarða og er ætlað að verða nýtt kennileiti í ferðaþjónustu Íslands og munu færustu hönnuðir verða fengnir til þess að hanna staðinn. Gestir eiga að geta upplifað allt í senn; heitar laugar, Hoffellsjökul, Hoffellslón og Vatnajökul.
Þetta kemur fram í matsáætlun sem lögð hefur verið fram til kynningar. Til stendur að reisa allt að 120 herbergja hótel á skógræktarsvæði sem og baðlón með búningsklefum, stunda veitingarekstur og bjóða jöklasýningu við Hoffellslón. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist 2026 og að baðstaður opni 2028. Hóteluppbygging hefjist 2027 og ljúki 2029 eða 2030. Fyrstu fréttir sem bárust af verkefninu birtust sumarið 2024 þegar greint var frá því að Bláa lónið hefði fest kaup á jörðinni Hoffell 2 í Austur-Skaftafellssýslu. Fram kom í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu að markmiðið væri að móta einstakan stað fyrir ferðamenn, við rætur Hoffellsjökuls og skapa segul sem styrki Suðausturland sem áfangastað ferðamanna. Gestastofa, sýningarhald og fræðsla Í matsáætluninni kemur fram að hönnun standi nú yfir og að verkefnið muni þróast samhliða vinnu við mat á umhverfisáætlun. Uppbyggingin muni fara fram á tveimur svæðum innan framkvæmdasvæðisins. Á skógræktarsvæði verði eins og áður segir byggð upp hótelgisting og veitingaþjónusta. Böðin við Hoffellslón eigi svo að verða einstakur baðstaður upp við lónið. Þar verði bygging sem felld verði inn í landslagið eins og best verði á kosið og færustu hönnuðir fengnir til hönnunarinnar. Tekið er fram að böðin verði opin almenningi og gert ráð fyrir allt að 1500 gestum á dag. Horft í norðurátt í átt að Hoffellsjökli og Hoffellslóni frá jökulgarðinum. Efla verkfræðistofa Gerð verði krafa um vandað útlit mannvirkja og lóðar og gæta skuli samræmis í heildaryfirbragði bygginga á svæðinu. Í byggingunni verði móttaka, sýningarhald, verslun, almenn veitingaþjónusta, baðlaugar og búningsklefar með 400 til 600 skápum. Einnig eigi að vera þar gestastofa með sýningarhaldi og fræðslu um Hoffellssvæðið og Hoffellsjökul. Fyrirhugað sé að vera með fræðslusýningu um jökla, rénun þeirra og loftlagstengdum málefnum því tengdu. Staðsetning og umfang mannvirkis við jökulgarð. Svæðið sem afmarkað er með bláu táknar það svæði sem talið er fara undir mannvirki, lón og landmótun tengda framkvæmdinni. Hvíta punktalínan sýnir hvernig fyrirhuguð stærð og umfang mannvirkis gæti verið. Frekari hönnun fari fram eftir jarðvegsrannsóknir. Efla verkfræðistofa Óvíst hvernig hönnun lónsins verður Bygging baðlónsins sjálf sé svo fyrirhuguð norðan megin við jökulgarðinn til þess að halda bæði ásýnd inn dalinn óskertu ásamt því að gestir fái að njóta útsýnis yfir jökulinn og jökullónið. Til skoðunar sé að nota þak byggingarinnar sem útsýnispall fyrir alla sem leggi leið sína inn í dalinn. Hótelið verði þrjár til fjórar hæðir og muni geta tekið við allt að 240 gestum. Þannig eigi jafnframt að tryggja og betrumbæta aðgengi fólks sem ekki eru gestir baðlónsis til að sem flestir geti áfram notið þess sem svæðið hafi upp á að bjóða. Þá kemur fram að nákvæm staðsetning baðlónsins innan jökulgarðsins og útfærsla mannvirkisins liggi ekki fyrir á þessu stigi. Þau atriði ráðist af niðurstöðum jarðtæknirannsókna sem fyrirhugaðar séu í lok þessa árs. Rannsóknirnar fela í sér jarðfræðiboranir sem miði að því að greina jarðlög og meta fýsileika þess að reisa mannvirki á svæðinu. Vegna þeirrar óvissu sé eki hægt að leggja fram myndir eða nákvæma lýsingu á útliti og hönnun baðlónsins að svo stöddu. Framkvæmdasvæði Hoffells ásamt svæðaskiptingu. Efla verkfræðistofa Hægt að baða sig inni og úti Þá segir að rík áhersla verði lögð á að bygging sé falin frá aðkomuleið að lóninu, sem sé eftir vegi sem lagður var á fjórða áratug síðustu aldar. Það verði gert til þess að halda útsýni að jökulgarðinum og jöklinum frá jökulaurum óskertu. Bílastæði verði staðsett við jökulgarðinn sem muni þá þjónusta bæði baðstaðinn sem og almenna gesti þjóðgarðsins. Baðstaðurinn verði staðsettur nálægt mörkum þjóðgarðsins, þannig geti gestir þjóðgarðsins sem ekki hyggist í bað einnig notið veitingaþjónustu og jöklasýningar í byggingunni við Hoffelsslón. Fyrirhugað er að staðsetja baðlón, veitingaþjónustu og gestastofu við jökulgarðinn. Á myndinni er horft til norðurs frá jökulgarðinum og má sjá tungu jökulsins, Hoffellslón til vinstri og Geitafellsbjörg til hægri. Efla verkfræðistofa Segir að við nánari útfærslu á baðstað, bílastæði, stígum og öðrum framkvæmdaþáttum í grennd við mörk þjóðgarðsins verði haft samráð við Vatnajökulsþjóðgarð. Þess er einnig getið að landslagið við jökulgarðinn sé í sífelldri mótun í kringum ölduna og vistkerfið viðkvæmt. Því gefi auga leið að stíga þurfi varlega til jarðar og styðjast við gögn frá jarðfræðingum og verkfræðingum til að tryggja lágmarksrask fyrir byggingu af slíku tagi á vistkerfi, landslag og útsýni. Unnin hafi verið skýrsla til að kortleggja jarðmyndanir og möguleg merki á yfirborð ium hreyfingu, skilgreina viðkvæm svæði og hreyfingu jökulsins. Þar sem allra veðra sé von sé fyrirhugað að baðlónið geti verið bæði innandyra og utandyra og mótað á þann hátt að gestir geti leitað skjóls frá veðri eða notið sólarljóss ef svo ber undir.
Ferðaþjónusta Bláa lónið Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Viðskipti innlent Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Viðskipti innlent Jensens Bøfhus lokað Viðskipti erlent Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Viðskipti innlent „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Neytendur Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Viðskipti innlent Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent Telja viðgerð geta tekið allt að ár Viðskipti innlent Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Viðskipti erlent Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Samstarf Fleiri fréttir Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Sjá meira