Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2025 12:50 Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir Seðlabankans muni haldast óbreyttir í 7,5 prósentum á næsta vaxtaákvörðunardegi, það er á miðvikudaginn í næstu viku. Framsýn leiðsögn verði milduð talsvert í ljósi kólnandi hagkerfis og lakari efnahagshorfa og spáir bankinn að vaxtalækkunarferlið gæti hafist á ný í febrúarbyrjun 2026. Vextir muni þannig lækkað talsvert fram á næsta haust.
Þetta kemur fram í nýrri greiningu bankans. Þar segir að við vaxtaákvörðunina muni vegast á skýr merki um kólnun á fasteignamarkaði, minni spenna á vinnumarkaði og versnandi efnahagshorfur annars vegar, og þrálát verðbólga á víðum grunni og háar verðbólguvæntingar hins vegar. „Það takmarkar líka svigrúm nefndarinnar að þessu sinni að hafa undanfarið hálft ár bundið frekari lækkun vaxta afdráttarlaust við frekari hjöðnun verðbólgunnar sjálfrar. Þótt slík framsýn leiðsögn sé vissulega ekki grafin í stein þegar aðstæður breytast væri óheppilegt fyrir tiltrú á leiðsögn peningastefnunefndar fram á við að víkja fyrirvaralaust frá jafn eindregnu skilyrði. Líklega mun þó nefndin núna opna á að vikið verði frá þessu skilyrði fyrr en seinna og almennt má búast við mildari tóni í yfirlýsingu nefndarinnar en í ágúst og október. Í október hélt peningastefnunefnd Seðlabankans vöxtum óbreyttum í annað sinn eftir samfellda vaxtalækkun frá október í fyrra fram í maí síðastliðinn. Voru nefndarmenn samhljóða í ákvörðuninni líkt og var í ágúst. Framsýn leiðsögn bankans var keimlík leiðsögninni í ágúst en tónninn var þó mildaður aðeins. Hún hljóðaði svo: Margt hefur þokast í rétta átt en þær aðstæður hafa ekki enn skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2½% markmiði bankans. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Peningastefnunefndin hélt með öðrum orðum áfram að fastbinda næstu skref peningastefnunnar við hjöðnun 12 mánaða verðbólgunnar líkt og hún hefur gert frá maí síðastliðnum. Við söknuðum þess raunar að ekki skyldi hnykkt á því í yfirlýsingunni að vextir kynnu að þurfa að hækka á ný ef verðbólguþróun verður óhagstæð. Um það voru þó tekin af öll tvímæli á kynningarfundi eftir vaxtaákvörðunina. Þótt framsýn leiðsögn af þessum toga sé vissulega skýr og skorinorð hefur hún þann ágalla að einblína á sögulega þróun fremur en horfur um verðbólgu og hagþróun. Við höfum til að mynda bent á að ef efnahagshorfur breyttust verulega án þess að verðbólgutakturinn sjálfur breyttist setti það peningastefnunefndina í erfiða stöðu. Sú staða virðist einmitt vera að teiknast upp að þessu sinni,“ segir í greiningunni.
Seðlabankinn Íslandsbanki Íslenska krónan Mest lesið Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Viðskipti erlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu Sjá meira