Tilbrigði við sannleika Lestrarklefinn 19. nóvember 2025 13:38 Staðreyndirnar er þriðja skáldsaga Hauks Más Helgasonar. Lestrarklefinn tók bókina fyrir. Staðreyndirnar eftir Hauk Má Helgason er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Sjöfn Asare hefur þetta að segja um bókina.
Staðreyndirnar er þriðja skáldsaga Hauks Más Helgasonar, sem er menntaður heimspekingur og hefur sent frá sér ljóð og fræðigreinar auk skáldsagna. Sögulega skáldsaga hans Tukthúsið hlaut mikið lof þegar hún kom úr árið 2022 og nú fylgir hann henni eftir með skáldaðri sögu sem þó er byggð á raunverulegum atburðum, eða því sem næst er komist að séu raunverulegir atburðir. Eða hvað? Sjöfn Asare fjallar um bókina í Lestrarklefanum. Eftirköst slaufunar Lesandinn fylgir eftir embættismanninum Steini sem er á svolitlum krossgötum í lífinu. Hann skandalíseraði í fyrra starfi, lenti í sambandsslitum og svolítilli slaufun. En flokkurinn sem hann er meðlimur í er honum auðvitað hliðhollur og kann að meta menn eins og Stein. Menn sem fylgja flokkslínunni og vita hvar kröftum þeirra er best varið. Og í þakkarskyni fyrir vel unnin verk, og auðvitað fyrir að taka allan skellinn fyrir skandalinn, fær hann nú annað tækifæri. Nýja vinnu. Nýtt upphaf. Í nýju ráðuneyti. Ráðuneyti sannleikans Til stendur að stofna nýtt ráðuneyti og helsta verkefni þess er að skrá staðreyndirnar. Hvaða staðreyndir? Jú, allar. Á tímum falsfrétta og óreiðu í upplýsingaflæði hefur ríkisstjórnin ákveðið að byggja upp vél sem kann allar staðreyndir og hægt er að spyrja þegar deilumál koma upp. Þessi sannleiksvél hljómar fjarstæðukennd á sama tíma og hún hljómar eins og eitthvað sem ríkisstjórnum heimsins gæti dottið í hug að nýta sér. Steinn er settur í yfirumsjón þróunarinnar ásamt gömlum anarkista sem þarf nú að fá salt í grautinn, og ferlið hoppar í gang. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Bókmenntir Menning Jól Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira