Enn skorað á Willum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. desember 2025 11:24 Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Framsóknarmaður. Vísir/Anton Brink Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ og fyrrverandi ráðherra og þingmann flokksins, að bjóða sig fram til formennsku í Framsókn á næsta flokksþingi sem haldið verður í febrúar.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Áður höfðu Framsóknarmenn í Garðabæ og Skagafirði skorað á Willum að bjóða sig fram. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins hefur tilkynnt að hann ætli að stíga til hliðar á flokksþinginu. „Framsóknarfólk í Kópavogi er sammála um að Willum Þór sé fullkominn kostur í formennsku flokksins og nákvæmlega það sem Framsókn þarf á þessum mikilvæga tímapunkti í sögu flokksins,“ segir í tilkynningunni. „Framsókn þarf að blása til sóknar með skýrum markmiðum og áherslum og með grunngildi flokksins að leiðarljósi. Á þessum tímamótum í Framsókn þarf að styrkja trú fólks á verkefninu og það er enginn betur til þess fallinn en auðmjúkur og öflugur leiðtogi eins og Willum Þór til að leiða flokkinn – reynslumikill stjórnmálamaður sem nýtur trausts um land allt.“ Willum hefur sagst íhuga framboð. Lilja Alfreðsdóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður flokksins hefur sömuleiðis verið orðuð við framboð til formanns. Framsóknarfólk í Reykjavík hefur skorað á hana að taka formannsslaginn. Þá hefur Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður sagt ýmsa hafa komið að orði við sig um framboð. Hún hefur þó sagt of snemmt að taka afstöðu til framboðs og hið sama má segja um Willum og Lilju. Öll þrjú liggja undir feldi.
Framsóknarflokkurinn Kópavogur Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira