Viðskipti innlent

Fjár­hæð veiðigjalds enn ekki verið til­kynnt

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga eru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga í veiðigjöld á næsta ári.
Sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga eru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga í veiðigjöld á næsta ári. Vísir/Vilhelm

Enn liggur ekki fyrir hver fjárhæð veiðigjalds næsta árs verður, þrátt fyrir ákvæði laga um að ríkisskattstjóri geri tillögu um fjárhæð þess til ráðherra eigi síðar en 1. desember ár hvert. Enn sem komið er hafa ekki fengist svör frá stjórnvöldum um hvað veldur töfinni en sjávarútvegsfyrirtæki sem eiga að greiða gjaldið eru farin að lengja eftir því að vita hvað þau eigi að borga á næsta ári.

Umdeildar breytingum á lögum um veiðigjöld voru samþykktar í sumar. Með þeim voru gerðar breytingar á viðmiðum við útreikning aflaverðmætis sem hefur í för með sér áhrif til hækkunar veiðigjalds. 

Hins vegar þarf að reikna út gjaldið ár hvert miðað við þær forsendur sem lög gera ráð fyrir við ákvörðun gjaldsins.

Samkvæmt 4. grein laga um veiðigjald, sem fjallar um fjárhæð gjaldsins, skal ríkisskattstjóri gera „tillögu um fjárhæð veiðigjalds hvers nytjastofns fyrir komandi veiðigjaldsár til þess ráðherra sem fer með sjávarútvegsmál eigi síðar en 1. desember,“ líkt og segir í lögunum. „Skal tillagan vera um að veiðigjaldið nemi 33% af reiknistofni hvers nytjastofns skv. 5. gr. Ráðherra auglýsir gjaldið sem krónur á kílógramm landaðs óslægðs afla fyrir áramót. Veiðigjaldsár er almanaksár.“

Minnst fimm dögum of seint á ferðinni

Fyrsti desember var á mánudaginn og í dag er sá fimmti, svo ljóst er að ákvörðunin er seinni á ferðinni en tíðkast hefur. Fréttastofa hefur eftir hádegi í dag óskað eftir skýringum frá atvinnuvegaráðuneytinu og leitað svara hjá Fiskistofu um hvað veldur, en að svo stöddu hafa aðeins fengist þau svör að málið sé í vinnslu.

Sjá einnig: „Mis­vitrir stjórn­mála­menn“ skattleggi út­gerðina í drep

Það er Fiskistofa sem leggur veiðigjald á aflann og renna tekjurnar í ríkissjóð, en á heimasíðu stofnunarinnar má sjá að í fyrra var auglýsing um veiðigjald birt í stjórnartíðindum þann 28. nóvember og þann 27. nóvember árið 2024, sem er öllu fyrr en raunin er í ár.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru fyrirtæki í sjávarútvegi farin að lengja eftir upplýsingum um hver endanleg upphæð verður sem þeim endanlega ber að greiða frá og með áramótum samkvæmt nýjum lögum. Gjalddagi veiðigjalds er fyrsta dag hvers mánaðar vegna veiða þarsíðasta mánaðar, en breytt lög um veiðigjöld tóku gildi þann 1. nóvember síðastliðinn. Þannig ber sjávarútvegsfyrirtækjum að greiða gjaldið í fyrsta sinn samkvæmt nýjum lögum eftir innan við mánuð.

Segir tafirnar óásættanlegar

„Að sjálfsögðu erum við farin að lengja eftir þessu. Menn er í áætlanagerð og öðru og ógangsæið er meira nú um hver niðurstaðan verður,“ segir Gunnþór Ingvason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, í samtali við Vísi. Aðferðarfræðin sem nýju lögin miði við sé að hans mati röng og fyrirtækin meira í lausu lofti nú en áður.

„Það er óvissa hvar þetta endar svona rétt fyrir áramót, þannig þetta er ekki ásættanlegt,“ segir Gunnþór, sem þó kveðst vongóður um að niðurstaðan muni liggja fyrir fyrir lok dags í dag.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS.Vísir/arnar

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×