Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Jakob Bjarnar skrifar 9. desember 2025 15:34 Topp tíu listinn eins og hann lítur út núna. Vísir birtir nú metsölulista bókaútgefenda (Fíbút) en í síðustu viku voru það veruleg tíðindi að Skólastjóri Ævars Þórs Benedikssonar seldist mest allra íslenskra bóka í bæði október og nóvember. Skaut Ævar Þór þar sjálfum metsölukóngi Íslands, Arnaldi Indriðasyni, ref fyrir rass.
Og enn er Skólastjórinn á toppnum! „Þrátt fyrir pólitíska klæki og bellibrögð úr ýmsum áttum þá haggar ekkert veru þessa skólastjóra í toppsætinu eftir sölu fyrstu vikunnar í desember. Ævar Þór brosir breitt þessa dagana og hann hefur efni á því. Skólastjóri hans selst sem heitar lummur.vísir/valli Þetta er glæsilegur árangur hjá Ævari Þór sem lengi hefur skrifað vinsælar bækur fyrir börn,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút. Tál Arnaldur Indriðasonar situr áfram í öðru sæti en Syndafall Yrsu Sigurðardóttur flýgur úr ellefta sæti upp í það þriðja og skákar þar með bæði Kvöldsónötu Ólafs Jóhanns og Útkalli eftir Óttar Sveinsson. Aldrei hafa fleiri skáldsögur verið kynntar í Bókatíðindum svo nú er hægt að skoða alls kyns vinkla á sölu þeirra. „Þessa vikuna skiptum við skáldverkum upp í þrjá flokka; glæpasögur, sögur eftir höfunda sem á þessu ári ná fimmtíu ára aldri eða eru eldri og sögur eftir höfunda sem eru eða hafa verið undir fimmtugu við frumútgáfuár verks síns. Ég ætlaði reyndar fyrst að miða við fertugsaldurinn og var þá að horfa til þess að Arnaldur Indriðason var undir fertugu þegar hans fjórða bók, Mýrin kom út,“ segir Bryndís. Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda er komin í jólabókaham og hún leiðir lesendur Vísis í gegnum refilstigu íslenskrar bóksölu. Aldrei hafa fleiri skáldsögur komið út en nú. Líklega ráða ríkisstyrkirnir því en litlar sem engar bremsur virðast á því hvað kemur út og hvað ekki.vísir/vilhelm Halldór Laxness var búinn að gefa út Heimsljós, Sjálfstætt fólk og Sölku Völku fyrir fertugt, Vigdís Grímsdóttir gaf meðal annars út Kaldaljós, Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón og Stúlkuna í skóginum fyrir fertugt og Auður Haralds gaf meðal annars út Hvunndagshetjuna, Læknamafíuna og fjórar Elíasarbækur áður en hún fagnaði fertugu. „Mér fannst ég vera alveg með þetta en þegar á hólminn var komið þá var einfaldlega betra jafnvægi á milli eldri og yngri deildarinnar með því að draga línuna við fimmtugt. Þarna flétta ég inn þýðingar til jafns við íslenskar frumútgáfur,“ að sögn Bryndísar. Það kom kannski helst á óvart að þýðingin á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson skyldi rata á yngri deildarlistann en hann var 47 ára þegar Aðventa kom fyrst út á þýsku árið 1936. „Það er óþarfi að fara nákvæmlega yfir þessa lista en vert að minna á að þó þarna séu upp talin 30 mest seldu skáldverkin þá er það aðeins rúm 10 prósent af heildarúrvali nýrra íslenskra og þýddra skáldverka og ljóða sem á boðstólnum eru á þessu ári.“ Óttar Sveinsson situr á toppi fræðibókalistans og hefur fyrir löngu slegið öll met með útgáfu á fjórða tug metsölubóka í þessari vinsælustu ritröð. Það verður svo enginn maður með mönnum sem ekki fær bæði Jeppar í lífi þjóðar og Steikarbók Óskars í jólagjöf. Hæsta flugið á þessum lista eiga svo Söguþættir landpóstanna sem virðast ætla að verða einn af óvæntari smellum ársins. Að lokum býður Bryndís upp á þrjá barnabókalistar, einn fyrir yngstu kynslóðina, annar fyrir þá sem farnir eru að lesa sjálfir og sá þriðji inniheldur alls kyns fræðibækur, handbækur og verkefnabækur. „Það sama á við hér og í skáldverkunum, þrátt fyrir að hér séu sýndar 30 mest seldu barnabækurnar þá er það aðeins um 10 prósent af heildarúrvalinu.“ Bóksölulistinn – mest seldu bækurnar 1.-7. desember 1. Skólastjórinn - Ævar Þór Benediktsson, myndir Elín Elísabet Einarsdóttir2. Tál - Arnaldur Indriðason3. Syndafall - Yrsa Sigurðardóttir4. Kvöldsónatan - Ólafur Jóhann Ólafsson5. Útkall : Ég er á lífi - Óttar Sveinsson6. Franski spítalinn - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir7. Lára fer á hestbak - Birgitta Haukdal, myndir A. Aleqsanian og E. Nazaryan8. Atli fer í tívolí - Birgitta Haukdal, myndir A. Aleqsanian og E. Nazaryan9. Jeppar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson10. Orri verður óstöðvandi - Bjarni Fritzson11. Birtingur og símabannið mikla - Gunnar Helgason, myndir Elías Rúni12. Hin helga kvöl - Stefán Máni13. Vegur allrar veraldar : Skálkasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir14. Sjá dagar koma - Einar Kárason15. Bluey : Hvar er Bluey - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson16. Lína fer í lautarferð - Astrid Lindgren, þýð. Sigrún Árnadóttir17. Leikum með sveinka -18. Dagbók Kidda klaufa 19 : Sull og bull - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson19. Spegill þjóðar : Fréttamyndir í fimmtíu ár - Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson20. Söguþættir landpóstanna - Helgi Valtýsson og Guðjón Ragnar Jónasson ritstýrðu
Bókaútgáfa Bókmenntir Mest lesið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Sjá meira