Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Sindri Sverrisson skrifar 15. desember 2025 20:29 Jón Bjarni Ólafsson var markahæstur hjá FH í kvöld. Vísir/Anton Brink Alls voru 83 mörk skoruð á Selfossi í kvöld þegar topplið Vals vann heimamenn, 43-40, í Olís-deild karla í handbolta. FH-ingar unnu góðan endurkomusigur gegn Stjörnunni, 33-31, í Kaplakrika.
FH lenti mest fjórum mörkum undir í seinni hálfleik, til dæmis í stöðunni 23-19, en þá komu þrjú mörk í röð frá FH sem náði svo að jafna metin í 24-24, þegar enn var korter eftir. FH-ingar komust svo fljótlega yfir og héldu naumu forskoti út leikinn. Samkvæmt HB Statz var Jón Bjarni Ólafsson markahæstur hjá FH með 8 mörk og Garðar Ingi Sindrason skoraði 7. Hjá Stjörnunni var Hans Jörgen Ólafsson markahæstur með 9 mörk og Gauti Gunnarsson skoraði 6. Arnór Snær og Gunnar Kári með tíu hvor Valur var 23-19 yfir í hálfleik á Selfossi í galopnum slag. Selfyssingar mættu grimmir í seinni hálfleikinn og minnkuðu forskotið hratt. Þeim tókst svo að jafna metin í 38-38 þegar sex mínútur voru eftir en þá skoruðu Valsmenn tvö mörk í röð og enduðu á að vinna þriggja marka sigur í þessum ótrúlega markaleik. Arnór Snær Óskarsson hefur átt góða heimkomu úr atvinnumennsku og varð markahæstur Vals með 10 mörk en Andri Finnsson skoraði 9. Hjá Selfossi var Gunnar Kári Bragason markahæstur með 10 mörk og Hannes Höskuldsson skoraði 9. Fimmtándu umferðinni, þeirri síðustu fyrir jóla- og EM-hlé, lýkur í kvöld með leikjum KA og HK, Aftureldingar og ÍR, og Hauka og Fram. Ljóst er að FH fer í fríið í 4. sæti með 19 stig en Valur er á toppnum með 24 stig. Stjarnan er í 8. sæti með 10 stig og Selfoss með stigi minna í 10. sæti.
Olís-deild karla FH Stjarnan Valur UMF Selfoss Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Sjá meira