Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Árni Sæberg skrifar 19. desember 2025 15:26 Frá dómsuppkvaðningu í fyrsta Vaxtamálinu. Á miðri mynd er Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Hæstiréttur mun kveða upp seinni tvo dómana í Vaxtamálinu svokallaða á mánudag. Rétturinn hefur frest til annars vegar gamlársdags og hins vegar 5. janúar til þess að kveða upp dóma í málunum tveimur.
Á vef Hæstaréttar segir að dómar verði kveðnir upp í tveimur málum neytenda á hendur Landsbankanum klukkan 14 mánudaginn 22. desember. Gríðarleg óvissa hefur verið uppi á lánamarkaði frá því að Hæstiréttur dæmdi tiltekna skilmála Íslandsbanka í samningi um óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum ólögmæta þann 14. október síðastliðinn. Síðan þá hafa lánveitendur breytt lánaframboði sínu en enn er uppi óvissa um önnur lánaform. Hæstiréttur sýknaði Arion banka aftur á móti af öllum kröfum neytenda í máli sem varðaði verðtryggt lán á breytilegum vöxtum, þann 10. desember. Dómarar sennilega í fríi á gamlársdag Aðalmeðferð í þriðja málinu fór fram þann 3. desember. Það varðar óverðtryggt viðbótarlán með breytilegum vöxtum og í því er deilt um sambærilega skilmála og í máli neytenda á hendur Íslandsbanka. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi bankanum í vil í mars síðastliðnum, einkum með vísan til þess að vextirnir sem lántakendur greiddu voru aldrei hærri en upphafsvextir miðað við lánasamninginn. Þannig nýtti bankinn sér aldrei umdeilda skilmála til þess að hækka vextina.Hæstiréttur veitti lántakendunum áfrýjunarleyfi til réttarins í byrjun júní, án þess að málið væri tekið fyrir í Landsrétti. Samkvæmt lögum um meðferð einkamála skal kveða upp dóm eigi síðar en fjórum vikum eftir málflutning, ellegar skuli flytja mál á ný. Einkar óvanalegt er að Hæstiréttur fari umfram fjórar vikurnar og sömu sögu er að segja af því að rétturinn kveði upp dóma innan fjögurra vikna. Því hefði mátt reikna með því að dómur í því yrði kveðinn upp þann, 31. desember, á gamlársdag. Nú er ljóst að dómarar Hæstaréttar ætla ekki að kveða upp dóm á síðasta degi ársins heldur kveða þeir upp dóm aðeins tæpum þremur vikum eftir aðalmeðferð. Taka helmingi styttri tíma en þeir hafa Loks var aðalmeðferð í máli tveggja lántakenda á hendur Landsbankanum á dagskrá þann 8. desember. Í því er deilt um skilmála tveggja verðtryggða skuldabréfa sem gefin voru út árið 2006 til forvera Landsbankans, til þess að gera upp skuld vegna yfirdráttar. Landsbankinn var í héraði dæmdur til að endurgreiða lántakendum rúmlega 100 þúsund krónur hvorum um sig en Landsréttur sýknaði bankann. Rétturinn taldi það ekki hafa verið ósanngjarnt af bankanum að bera fyrir sig skilmála um vaxtabreytingar, þar sem vextir hefði iðullega verið lægri en upphafsvextir. Samkvæmt sömu forsendum og reifaðar eru hér að framar hefði mátt ganga út frá því að dómur í málinu gengi þann 5. janúar næstkomandi. Þess í stað verður hann kveðinn upp á mánudag, aðeins tveimur vikum eftir aðalmeðferð.
Vaxtamálið Fjármálafyrirtæki Lánamál Neytendur Dómsmál Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira