Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Aron Guðmundsson skrifar 21. desember 2025 23:19 Hjalti Þór er alfarið tekinn við þjálfun Bónus deildar liðs Álftaness í körfubolta. Hann var áður aðstoðarþjálfari liðsins undir stjórn Kjartans Atla Kjartanssonar Vísir/Hulda Margrét Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Álftaness í körfubolta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Álftnesingum í kvöld. Hjalti var áður aðstoðarþjálfari liðsins undir stjórn Kjartans Atla Kjartanssonar.
Kjartan Atli, sem hafði áður gert góða hluti með lið Álftaness og meðal annars komið því upp í efstu deild og fest það þar í sessi, sagði upp störfum eftir stórt tap gegn Tindastól í Bónus deildinni á dögunum. Á þeim tímapunkti var Hjalta Þór, aðstoðarþjálfara Álftaness, falið að stýra liðinu í næstu tveimur leikjum þess á meðan að leit stæði yfir að næsta þjálfara liðsins. Leikirnir tveir voru báðir gegn Stjörnunni, annars vegar í bikarnum og hins vegar í deildinni og töpuðust báðir en stjórnarmenn körfuknattleiksdeildar félagsins virðast hafa séð jákvæða punkta hjá liðinu og því komist að þeirri niðurstöðu að ráða Hjalta sem þjálfara liðsins til frambúðar. „Hjalti er einstakur innan vallar sem utan. Hann brennur bæði fyrir körfuboltaþjálfun og samfélaginu hér á Álftanesi. Við erum gríðarlega ánægðir að halda honum innan klúbbsins,“ lætur Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Álftaness, hafa eftir sér í fréttatilkynningu deildarinar. Ívar Ásgrímsson hefur þá verið ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Ívar er þaulreyndur þjálfari sem er einnig starfandi framkvæmdastjóri Ungmennafélags Álftaness. Ívar Ásgrímsson er mættur aftur í þjálfunVísir/Anton Brink
Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira