Vara við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum Eiður Þór Árnason skrifar 22. desember 2025 18:15 Spáð er mikilli uppsafnaðri úrkomu á Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Gert er ráð fyrir aukinni hættu á skriðuföllum vegna þessa. Vísir/Egill Auknar líkur eru á skriðuföllum næstu daga og er sér í lagi varað við hættu á grjóthruni þar sem vegir liggja undir bröttum hlíðum. Spáð er mikilli rigningu og hlýindum á Vestfjörðum og Vesturlandi.
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir sunnanstormi um jólin og spáir hlýindum, leysingu og talsverðri rigningu. Vegna þessa er búið að gefa út úrkomuviðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og Vestfirði. Sunnanstormur er væntanlegur á morgun og talið að mikil rigning fylgi hvassviðrinu. Búist er við að þessu veðri fylgi talsverð uppsöfnuð úrkoma. Á Snæfellsnesi er spáð 100 til 150 millimetra úrkomu á láglendi yfir þrjá sólarhringa. Sömu tölur er að sjá á Vestfjörðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni. Samfara hlýindum og úrkomu í þessu magni er sagt hætt við vatnavöxtum í ám og lækjum. Vegna magns úrkomu megi heldur ekki útiloka vatnsflóð í kringum vatnsfarvegi. Þá sé gott að huga að niðurföllum í kringum hús til að forðast vatnstjón. Skriðuhætta mest á Snæfellsnesi og Vestfjörðum Einnig getur skapast skriðuhætta í þessum aðstæðum, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar. Auknar líkur séu á skriðuföllum þar sem úrkoman sé mest eða einna helst á Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Ofanflóðavakt Veðurstofunnar bendir sérstaklega á grjóthrunshættu þar sem mikil umferð sé á þessum tíma árs. Varað er við vegum undir bröttum hlíðum sem eru þekktir fyrir grjóthrunshættu. Þar megi nefna vegi um Súðavíkurhlíð, Raknadalshlíð, Hafnarmúla, Barðaströnd og undir Búlandshöfða. Á þeim svæðum sem mestri rigningu er spáð verði að mestu snjólaust en þar sem snjór sé í giljum og lækjarfarvegum geti krapaflóð fallið meðan veðrið stendur yfir. Spáð uppsöfnuð úrkoma 22 til 25. desember.Veðurstofa Íslands Ofanflóðavakt Veðurstofunnar biður því fólk um að sýna aðgát þegar ferðast er undir bröttum hlíðum, horfa í kringum sig og forðast að dvelja lengi innan og neðan farvega. Auk þess þurfi að hafa í huga að skriður geti fallið eftir að mesta ákefð rigningar sé liðin hjá. Þá er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám, viðvörunum og ástandi vega á vef Vegagerðarinnar. Sunnanstormur á morgun Um hádegi á morgun kemur sunnanstormur að vestanverðu landinu sem varir fram yfir aðfangadag jóla, 24. desember. Hvassviðrinu fylgir mikil rigning og hlýindi, að sögn Veðurstofunnar. Mest rignir um sunnan- og vestanvert landið en önnur landsvæði verða að mestu þurr. Á aðfangadagskvöld fer að draga úr vindi og úrkomu. Áfram verður hlýtt á jóladag, fimmtudaginn 25. desember, og súld eða rigning með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu.
Veður Náttúruhamfarir Mest lesið Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Innlent Inga vill skóla með aðgreiningu Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent Fleiri fréttir Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Gular viðvaranir taka gildi Hvessir þegar líður á daginn Spáin fyrir gamlárskvöld að teiknast upp Frystir norðaustantil í kvöld Væta vestantil eftir hádegi Kuldaskil á leið yfir landið Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Jólin verða rauð eftir allt saman Gengur í langvinnt hvassviðri seinni partinn Hiti geti mest náð átján stigum Vara við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum Líklegt að hitamet verði slegið um jólin Sjá meira