Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 07:14 Veggjalýsnar fundust um borð í vél ástralska flugfélagsins Qantas. Vísir/Getty Ástralska flugfélagið Qantas neyddist til að kyrrsetja eina af vélum sínum í Róm eftir að veggjalýs fundust í farþegarými vélarinnar. Vélin hafði komið til Rómar frá Perth í Ástralíu.
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vélina úr umferð til hreinsunar eftir komuna til ítölsku höfuðborgarinnar og var flugi Qantas til baka til Perth frá Róm, sem fara átti daginn eftir, aflýst af þeim sökum. „Geta ekki flogið án flugvéla“ Talsmaður flugfélagsins segir flugið hafa verið fellt niður svo flugvirkjar og viðhaldsteymi gæti þrifið vélina rækilega eftir „vandamál sem greindist í fáeinum sætum í almennu farrými.“ Flugfélagið segir farþegarými véla sinna þrifin reeglulega og samkvæmt ströngustu kröfum auk þess sem sótthreinsiefni sé borið á þau á fimmtíu daga fresti. Í frétt Guardian er vísað í orð Michelle Power, sníkjudýrasérfræðings vi Macquarie-háskóla, sem segir afar líklegt að lýsnar hafi borist um borð með farangri eða á fatnaði farþega og síðan skriðið út í farþegarýmið. „Þær tengjast ferðalögum, fólk gistir kannski á hóteli þar sem eru veggjalýs og þar sem þeim finnst gott að vera í myrkri og laðast að lykt á fötum fólks. Þannig komast þær í farangur,“ segir hún. „Þær geta ekki flogið án flugvéla,“ bætir Power við. Að hennar sögn eru veggjalýs ekki hættulegar þó bit þeirra geti valdið kláða og ertingu. Hins vegar sé mjög erfitt að losna við þær því þær geti falið sig lengi í rúmfötum án þess að nærast. Þá séu tvær hliðar á því hvernig veggjalýs þrífist. Efnameira fólk sem ferðast mikið fái þær og dreifi áfram en fólk sem býr við verri kjör hafi ef til vill ekki efni á meindýraeitri eða á að hita vatn í 55 gráður, sem þarf til að drepa þær.
Skordýr Flug Ítalía Ástralía Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira