„Ekki jólin sem ég bjóst við“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 16:02 Chris Wood fagnaði ófáum mörkum með Nottingham Forest á síðustu leiktíð en þetta tímabil hefur verið allt önnur og mun leiðinlegri saga Getty/Carl Recine Chris Wood, framherji Nottingham Forest, verður frá keppni um nokkurt skeið eftir að hafa gengist undir aðgerð yfir jólahátíðina. „
Ekki jólin sem ég bjóst við en maður veit aldrei hverju fótboltinn kastar í mann,“ skrifaði Chris Wood á samfélagsmiðla sína. Nýsjálenski framherjinn hefur verið frá keppni síðan um miðjan október vegna hnémeiðsla og hefur enn ekki spilað undir stjórn Sean Dyche síðan hann tók við af Ange Postecoglou sem knattspyrnustjóri. Hinn 34 ára gamli leikmaður stóð sig frábærlega á City Ground á síðasta tímabili, skoraði 20 mörk í 40 leikjum þegar liðið tryggði sér sæti í Evrópukeppni. „Að fara frá öllum hápunktum síðasta tímabils yfir í baráttuna og persónulegu lægðirnar á þessu tímabili. Maður verður að vera viðbúinn öllu,“ skrifaði Wood. Wood tilgreindi ekki hvers eðlis aðgerðin var en hann hefur sést með hnéspelku á meðan hann fylgist með nýlegum leikjum Forest. Síðasti leikur Wood var í lokaleik Postecoglou, 3-0 tapinu gegn Chelsea þann 18. október. „Það er virkilega svekkjandi og pirrandi að ég þurfi að vera á hliðarlínunni í einhvern tíma í viðbót. Það er bara það sem þarf til að koma sterkari og betri til baka til að hjálpa liðsfélögum mínum að klára verkið sem þarf í úrvalsdeildinni og í Evrópu,“ skrifaði Wood. „Takk til allra sem hafa hjálpað til við þetta. Margir hafa lagt mikið á sig yfir jólin til að hjálpa mér í bataferlinu. Mikilvægast er að þakka lækninum okkar og læknateyminu. Einnig leikmönnum, starfsfólki og NFC-fjölskyldunni,“ skrifaði Wood. „Vona að þið hafið öll átt frábær jól, njótið nýja ársins og sjáumst árið 2026,“ skrifaði Wood. View this post on Instagram A post shared by Chris Wood 🇳🇿 (@woodsy39)
Enski boltinn Nottingham Forest Mest lesið Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Sjá meira